Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 11

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 11
9 — næsta þung. En önnur sök er þó þúsundfalt þyngri: Misbeiting vínandans er opt og ein- att orsök andlegs dauða. Misbeiting vínandans, ofdrykkjan, myrðir Iíkamann, en hún myrðir einnig sálina. Öllu andlegu lífi mannsins er skipt í þrjár aðaldeildir: Skynjan, tilfinning og vilja, Sjerhver hræring í mannssálinni heyrir undir eitthvað af þessu þrennu. Skynjanin er endurskin af alvizku guðs. Með henni íhugum vjer stórmerki hans og alla þá ómetanlegu velgjörninga, sem hann hefur veitt oss. Hún kennir oss að bera ijetta um- hyggju fyrir tímanlegu lífi voru. Hún kennir oss að skilja, hvað guð heimtar af oss í þessu lífi, og hvernig vjer eigum að búa oss undir tilkom- andi líf. Skynjanin er ein hlið af guðsmynd mannsins. Vegna hennar erurn vjer í ætt við guð, æðra eðlis, en öll dýr jarðarinnar. Tilfinn- ingin er endurskin af kærleika og alsælu guðs. Með henni eigum vjer að elska guð yfir alla hluti fram og náungann eins og sjálfa oss. Hún lætur oss njóta sælu og gleði kærleikans, þegar vjer erum í lífs-sambandi við guð. Hún fyllir samvizku vora sælum friði og hjörtu vor fögnuði og gleði í guði. Tilfinningin er ein hlið af guðsmynd mannsins. Vegna hennar erum vjer í ætt við guð, æðra eðlis, en öll dýr jarðarinnar. Viljinn er endurskin af heilagleik og almætti guðs. Viljinn

x

Tjaldbúðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.