Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 13

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 13
11 eyru hans, að hann heyrir ekki til barnsins síns, er grætur af hungri í kjöltu móður sinnar. Og ef barnsgráturinn ryður sjer braut gegn um vín- suðuna að eyra föðursins, eða fljótandi augu hans grilla í tár móðurinnar, þá hefur það stundum borið við, að hönd drykkjumannsins hefur fallið þungt á blcika vangann eða litla höfuðið, svo að tárin hafa blandazt blóði. Og þegar drykkju- maðurinn raknar úr rotinu, þá hefur hann engan frið fyrir ásökunum samvizkunnar, þangað til hann aptur drekkur hana drukkna af víni syndarinnar og að síðustu svæfir hana algjörlega. Því optar sem drykkjumaðurinn drekkur sig drukkinn, því dýpra sem hann sekkur, því magnlausari verður vilji hans, því erfiðara á hann með að reisa sig aptur á fætur. Hann verður smátt og smátt þræll ofdrykkjunnar og á enga viðreisnarvon. þannig veikir og sljóvgar ofdrykkjan skynj- anina, tilfinninguna og viljann, alla þá yfirburði, sem maðurinn hefur fram yfir dýrin. Gjörspiltur drykkjumaður virðist ekkert hafa annað fram yfir dýrin en syndasektina, sem liggur eins og þungt farg á honum. Hann er andlega dauður. Eilífa rjettlætið ritar á vegginn rnene, mene: Guð hefur talið þín æfiár og leitt þau til enda. Hann deyr mitt í syndum sínum. Eilífa rjettlætið skrifar á dómsspjaldið tekel: Pú ert veginn í skálum og ljettvægur fundinn. Hann fer til síns samastaðar.

x

Tjaldbúðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.