Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 15

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Page 15
— 1B — »Konungarnir eiga ekki að drckka vín. Stjórnendur eiga heldur ekki að elska sterka drykki, svo að þeir ekki drekki og gleymi lögunum og rangfæri málefni hinna aumu« (Orðskv. 31, 4—5). Nýja testamentið talar einnig mörg áhrifamikil orð gegn ofdrykkjunni. Frelsarinn segir sjálfur: »En gætið yðar, að hjörtu yðar ekki ofþyngist við óhóf í mat eða drykk eða búksorg, svo að ekki komi þessi dagur yfir yður óvart« (Lúk. 21. 34). Orð þessi skýrir Páll postuli, er haun segir: »Og drekkið yður ekki drukkna af víni, því að í því er andvara- leysi« (Efes. 5, 18). Hann telur og drykkjumenn- ina meðal verstu óbótamanna, meðal þjófa og ræningja, og segir, að þeir muni eigi »guðs ríki erfa«. Jeg kalla fram annað vitni mitt, og það ert þú, saga. Segðu mjer, saga: Hcfur þú á sdauðra- skrá« þinni nokkra þá menn, sem ofdrykkjan hefnr steypt niður í myrkur grafarinnar. Jeg heyri þig svara með grátklökkum rómi: Því miður skiptir tala þeirra manna þúsundum, bæði frá fyrri og seinni tímum. Og meðal þeirra eru margir þeir menn, sem hafa borið af flestum öðrum að andlegu og líkamlegu atgjörvi. í tölu þeirra eru mörg skáld og listamenn. En segðu mjer, saga: Hvenær hafa flest illvirki verið unnin í heiminum, og hverjar hafa verið orsakir þeirra? Jeg heyri þig svara: í ölæði hafa langflest illvirki

x

Tjaldbúðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.