Tjaldbúðin - 01.12.1900, Side 17

Tjaldbúðin - 01.12.1900, Side 17
15 — fyrir mönnum. Á dögum gamla testamentisins voru þeir Samson og Samúel bindindismenn. Á dögum nýja testamentisins var Jóhannes skírari bindindismaður. Það er ritningin, sem hefur vakið bindindishugmyndina. Allir vita og viðurkenna, að það er að eins algjört bindindi, sem megnar að sigra ofdrykkjuna. Reynsla fyrri og seinni tíma sanna þetta fyllilega. Vegna þess hafa bindindisfjelög myndazt á seinustu árum og ára- tugum. Herferð hefur verið hafin gegn ofdrykkj- unni. — Sýrus hefur safnað saman Medum og Persum og farið með her á hendur Belsasar. Belsasar er veginn og ljettvægur fundinn. Og ríki hans verður innan skamms geflð Medum og Persum.— Margar þúsundir manna og kvenna um allan heim hafa myndað bindindisfjelög. Þannig er hafinn bardagi gegn ofdrykkjunni. Bindindis- menn hljóta að sigra í bardaga þessum. Því ofdrykkjan er — eins og þegar er sýnt — dæmd til dauða af ritningunni, sögunni og siðgæðismeð- vitund allra manna. En bindindismennirnir standa á grundvelli mentunarinnar, mannúðarinnar og bróðurkærleikans. Þeir standa á grundvelli kristin- dómsins. Á merkisblæju þeirra er ritað: Elska skaltu náunga þinn. í höndum þeirra leikur sverð, sem er allra vopna bezt. Sverðið er orð guðs. Gcgn því getur engin verja staðizt. Það sundrar hjálmunum, klýfur skildina, ristir í sundur brynj-

x

Tjaldbúðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tjaldbúðin
https://timarit.is/publication/530

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.