Sjómannadagsblaðið - 08.06.1941, Blaðsíða 75
31
SíómANnAöágsblaðið
* Hvítvœngur« heitir ]>essi bátur og er afburða siglari.
staö. Einstaka. félög, einkum í Reykjavík, hafa
látið smíða kappróðrabáta og æfa rcðra þegar
veður leyfir, og er það lofsvert, sömuleiðis eru
kappróðrar á dagskrá Sjómannadagsins, en þar
hafa bátar undanfarið verið frá skipum hér
í höfn, með mismunandi lagi og þar af leiðandi
ganggóðir og' gangtregir, enda mun þar frekar
farið eftir að menn rói vel, en að um met sé
að ræða.
Nú er verið að bæta úr þessu og hafa nú þeg-
ar verið smíðaðir hér í Reykjavík eða eru í smíð-
imi fjórir kappróðrabátar, allir af sömu gerð
—■ og þegar farið verður að nota þá, má fara að
tala um met og verðiaun.
Sjómenn yfirleitt geta glatt sig vio, að bæði
kappságlingar og fleira þess háttar, »sport« má
nefna það, hefur staðið í stað síðan 1875 og
því engin óþverraorð vegna þess, slæðst inn
í íslenzkuna, sem nú er verið að vanda til.
Því þar hefðu án efa koniið til greina »ballón-
klýfur« og fleiri segl með nöfnum, sem ég þori
ekki að nefna, því að mönnum er svo uppsigað
við þau heiti á reiða, köðlum, seglum og segl-
búnaði, sem við nú notum, að ekki er ábætandi.
öotru máli er að gegna, þegar til íþróttamanna
kemur, þar sem t. d. swrvigt, léttvigt og flugu-
vigt þykir fín íslenzka, tölum ekki um Bridge,
er hefur ekki verið tekið öðruvísi en got-t mál
í ræðu og ri.ti.
Nú er svo komið árið 1941, að kappróðrabát-
ar hafa verið smíðaðir og áhugi manna er far-
inn að vakna, sem er fyrir öllu.
Næsta skref eru kappsiglingar og áhugi á
því sviði, ekki aðeins hjá sjómönnum, heldur
einnig hjá þeim, er vinnu stunda á landi.
Kappsiglingabátar eru. mjög mismunandi aö
stærð og gerð, og ágæta báta má fá smíðaða
hér, en þess verður að gæta, að séu slíkar ileyt-
ur, sem eiga að bera mikil segl, smíðaðar
af viðvaningum, verði ekki látnar á flot til
kappsiglinga, nema þær hafi verið skoðaðar
áður og fengio1 vottorð um styrkleika, af þar til
kjörnum mönnum.
Flóar og firðir þykja ágætir staðir til kapp-
Tuttugu ogfjiigra feta kappsiglari með 580 feifeta seglastærð