Ægir - 01.01.1909, Síða 1
ÆGIR.
MANAÐARRÍT UM FISKIVEIÐAR OG FARMENSKU.
4. árg.
Reykjavík. Jan
Febr. 19 0 9.
7.-8. blað.
Tilraunir með þorskanet.
í 2. árg. »Ægis« bls. 65 skýrði eg
siðast frá tilraunum, sem gerðar höfðu
verið nýlega á Austfjörðum til þess að
veiða þorsk í net. Síðan hafa verið gerð-
ar nýjar tilraunir á nokkrum stöðum og
skal eg skýra stuttlega frá þeim hér.
Fyrstar í röðinni og atleiðingamestar
eru tilraunirnar í Þorlákshöfn. Byrjunin
að þeim er þessi: Vetrarvertíðin 1906
hal'ði verið mjög rýr, eins og fleiri ver-
tíðir næst á undan. En í Þorlákshöfn
hefir aðeins verið brúkuð lóð, eins og í
öðrum veiðistöðum í Arnessýslu og mikill
meiri hluti allans ýsa. Einn af formönn-
unum í Höfninni var Gisli Gíslason,
frá Rauðabergi i Fljótshverfi, þá nýlega
fluttur að óseyrarnesi. Hann fór heim
til sín um páskana og datt þá i hug að
taka með sér 33 faðma langa laxa- fyrir-
dráttarnót með 3V2" riðli, er liann átli,
þegar liann fór aftur út í verið, og reyna
hvort eklci yrði fiskvart í hana, þar sem
aflinn á lóðir hafði nærri algerlega
brugðist lil þess tima. Hanni lagði nót-
ina (þorskanet hafði hann aldrei séð), á
12 faðma dýpi og var þegar við fyrstu
umvitjun vel var í hana af þorski og
stútungi og á einni viku, sem hún lá,
fékk hann 360 fiska, þar af V* undir mál-
fiskur, margt af hinum vænn þorskur
(allur fisknrinn mjög feitur) og svo 20
stórufsa.
Þessi tilraun og hepni Gísla, vakti
eins og eðlilegt var, mikla athygli i veiði-
stöðunni, og ekki laust við, að sumir öf-
unduðu hann af hlutarbótinni.
Nú hefði mátt ætla, að margir þeir,
er gera út i Þorlákshöfn, mundu hafa
viljað gera ýtarlegri tilraunir á næstu
vertið, 1907. Það vildu og sumir að visu,
en þá komu aðrir, er heyrt höfðu ýmis-
legt ljótt af netabrúkun i Faxaflóa og
töldu veiðistöðunni stofnað í voða, ef
byrjað yrði á netaveiðum, hún væri kom-
in í nógu mikla niðurlægingu af undan-
gengnu aflaleysi, og nóg væri kostað til
útgerðar áður, þótt netin bættust ekki við
o. s. frv. — Var svo haldinn fundur með
formönnum og þar samþykt að banna
allar tilraunir með þroskanet í Þorláks-
höfn. Þessu banni var hlýtt, þótt hart
væri.
Vertíðin 1907 varð enn lélegri en
1906. Þá var það nær vertíðarlokum að
einum formanni varð að orði við Gisla,
er þeim var rætt um afla leysið: »Ekki
hefði vertíðin orðið aumari, þótt menn
hefðu brúkað þorskanet«. Því var Gisli
samdóma. Bundu þeir þá fastmælum
með sér, að reyna þorskanet á næstu
vertið, þrátt fyrir bannið og fengu með
sér 4 aðra formenn í félagið. Þegarþetta
fréttist, brá svo við, að hinir formenn-
irnir, jafnvel þeir, er mest höfðu verið á
móti netunum, ásettu sér einnig hið sania,
bannið var þannig þegjandi numið úr
gildi og allir útveguðu sér regluleg þorska-
net fyrir næstu vertíð.
Á þessari vertið, 1908. fór svo að
allir (15 skip) lögðu net, hinir 6 umgetnu
formenn 10 net hvor, hinir 6—6 net