Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1909, Síða 6

Ægir - 01.01.1909, Síða 6
58 ÆGIR. .ættu í því augnamiði, að færa sér slikar leið- beiningar í nyt. í okt. eða þegar það fréltisl að afli liefði verið góður alstaðar varð, út- boðið af Labrador íiski svo ínikið upp um héruðin, að fiskur alment lækkaði til muna. Eins og ræður að líkindum varð eftir- spurn eftir íslenskum fiski minni, og menn bjuggust við tilfmnanlegri verðlækkun. Tilboðum sem komu frá íslandi, var ekki sint, og stórir farmar urðu að fara lil Km.hafnar og bíða cftir betri markaðs- horfum. Hin milda og góða veðurátta, sem var seinni liluta ársins 1907 og í byrjun árs 1908 tafði líka fyrir sölunni á fiskinum, þótt vetrarmánuðirnir jafnaðarlega séu góðir, livað snertir sölu á fiski. Tveir farmar, sem komu í febrúar frá Labrador urðu þess vegna að bíða hér lengi óseldir. Eftirspurn og sala á isu, sem alt hauslið hafði verið heldur góð, minkaði mjög mikið við byrjun ársins, og þegar kom fram á útmánuði seldist ekki neitt. Ef haft væri saina mál á ýsu og smáfiski mundi verða liægt að selja miklu meira liér á Norður-Italíu; en nú er venjulegast ísu þannig varið, að hún er upp og niður, hvorki stór eða lítil og vilja menn lielst ekki fá þá stóru. Aðeins örlítið af sending- uha frá íslandi er smá ýsa, en frá Færeyj- um jafnaðarlega mjög smá, og selst því mjög vel. Stór sending af ísu kom í byrjun vorsins liingað frá íslandi, og var hér um bil óseljanleg enda þótt að alt, sem var fyrirlyggjandi af smáfiski seldist með mjög góðu verði. í lok markaðstímans var því aðeins isa eftir c. 60,000 pd. í byrjun apríhnán. kom dálítil send- ing af smáfiski með gufuskipi frá Kaupm.- höfn, sá fiskur hafði legið um borð í skip- inu yfir veturinn, en var þó mjög vel út- litandi, sem efalaust stafar af því að liann hefur verið ágætlega verkaður. Ef þessi fiskur liefði komið á öðrum tíma, hefði liann þó ekki orðið annað en 2. flokks fiskur; en nú fyrir fanst ekki neinn fiskur nema ísa, og þegar kuldi var lika fremur 'venju, og engir jarðarávextir komu á markaðinn, var eftirspurn og sala fremur góð, og fiskurinn seldist bæði fljólt og vel þessi tilraun með geymslu á fiskinum um borð hafði þannig góðan árangur, en hæpið er samt að endurtaka slíka tilraun. Um nýjársleytið kom stór farmur af þyrsklingi, Labradon-iiski og ísu, mest- megnis frá Austur-íslandi. Þessi farmur féklc mjög harðan dóm hjá þeim sem tóku á móti farminum, sérstaklega af því hve liirðulauslega liafði verið farið með fisk- inn í meðförunum, og hann illa hlaðinn í sldpið, sérstaklega þyrsklingurinn. Þessi þyrsklingur var svo lítill, að hann var að meðaltali 4 þuml. á lengd eða lófastærð, og honum hafði verið fleygt í lestina hugs- unarlaust. Fiskur þessi var því í sorglegu ásigkomulagi þegar hann kom liér allur í smámolum. Þelta er ófyrirgefanlegt skeyt- ingarleysi að láta vöru, sem kostar mikla fyrirhöfn að afla, verða að engu, það virðist heldur ekki vera nein liagfræði í því inni- falinn að veiða og síðan að verka og senda út svo smáan fisk, sem vart getur kallast ætur. Víðast hvar annarsstaðar eins og t. d. í Labrador, er bannað að veiða fisk undir 12 þuml. og er það ákveðið með lögum, og ætti slíkt að komast í fram- kvæmd á íslandi ef tök væru tii. Um aðgreining á fiskinum alment og vöndun á vörunni frá hendi sendanda hef ég yfir höfuð ekki heyrt neitt kvartað yfir. Hin opinbera umsjón með aðgreiningu á fiskinum á íslandi liefur liaft góðann á- rangur, en það er slæmt að fiskimats- mennirnir eru ekki fleiri, tveir geta ómögu- lega komist yfir að hafa umsjón með öllu þvi, sem þaðan er sent, og því síður, sem samgöngur eru þar örðugar og slæmar. (Niðuri),

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.