Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1909, Side 15

Ægir - 01.01.1909, Side 15
ÆGI R. 67 Allur aflinn á árinu hefir því numið rúml. 139,000 kr. Þelta fyrirtæki þeirra félaga, sem er áreiðanlega hið arðsamasta fyrirtæki sem ráðist hefir verið í á íslandi, er vonandi að dafni svo vel og þróist, að það verði vísir til voldugs íslensks botnvörpuskipa- félags, sem með timanum geti fullkom- lega staðið á sporði stóru botnvörpufé- lögunum ensku, sem nú sækja fiskinn upp að ströndum íslands. Aflabrögð. y>Jón Forseth, botnvörpuskip félagsins »Alliance« seldi í Englandi í f. m. afla fyr 970 £ 17,460 kr. og mun það vera mesti afli að verðmæti sem nokkurt ís- lenskt skip hefur fengið nokkru sinni áður. y>Marza og »Snorri<i, hin tvö önnur botnvörpuskip er héðan fiska, hafa fiskað heldur lílið, Marz hefur saltað afla sinn, en selt smáfisk hér; en Snorri fór með farm til Englands í síðari liluta jan. Annars eru aflabrögð lítil og veður- átta venju fremur stirð um þessar mundir alstaðar við landið sem til spyrst. Strandað hafa tvö botnvörpuskip nú i janúannán.; annað þýskt »Grúnland« sigldi á land i Höfnum, og liitt enskt »City af London« rak í land á Reykja- víkurhöfn. Mannbjörg. Bátur fórst þ. 20. jan. á leið úr Rvík. upp á Kjalanes, á honum drukknuðu Guðm. hreppstj. Iíolbeinsson á Esjubergi og Arni Björnsson bóndi í Móum enfremur 1 drengur og 2 stúlkur. Útgerðarmenn, sem gera útþilskip til fiskiveiða á næstkomandi útgerðartíma eru beðnir að gefa gætur að auglýsingu þeirri sem stendur hér í blaðinu um vátnjggingu á farmi fyrir sjóskaða frá félagi því, sem ritari í stjórnarráðinu herra P. Hjaltesteð hefur umboð fyrir. Útgerðarmenn liafa á undanförnum árum orðið fyrir svo til- finnanlegu tjóni, bæði á slcipum og farmi á vetrum, að það ætti ekki að þurfa að brýna slíkt fyrir mönnum live nauðsyn- legt það er, að liafa alt vel trygt. Menn mega ekki við því eins og hagur manna er nú og horfur alment, að stofna fjár- munum sínum í hættu. Iðgjaldið er lágt. Útgerðamenn við Faxaflóa hafa kosið nefnd til þess að semja reglugjörð fyrir skip- stjóra á flskiskipum. Reglugjörð þessi sem eldd er fullgjörð en þá, hneigist aðallega í þá átt að skipstjórar eiga að takast á hendur ábyrgð á áhöldum skips og öðrum útbúnaði, að ekkert glatist fyrir handvömm eða hirðuleysi, ennfremur að þeir gæti alment betur liagsmuna útgerðarmanns en hingað til hefur oft og einalt átt sér stað. Ennfremur hefur komið fram tillaga í þá átt, að þeir skipstj. sem afla best og vanda best vöru sína, fái verðlaun sem nemi minsta kosti 100 kr. Helgi Zoega kaupm. er af útgerðar- mönnum ákveðin ráðningamaður háseta fyrir næsta útgerðartíma. Reglugjörð um ráðningu háseta við Faxaflóa sem getið var um í síðasta blaði og gilda skal fyrir næsta útgerðartímabil, (að minsta kosti), var breytt þannig, að hásetar skulu leggja sér til öll veiðarfæri. Tillaga skattanefndarinnar um vita. Það er enginn efi, að hraða þarf sem mest vitabyggingum hér á landi til tryggingar skipaferðum öllum. Er það álitkunnugra manna, svo sem skipstjóra Aasbergs, að meiru varði að fá smávita og leiðarljós víða, en einn eða tvo tiltölulega dýra vita. Samkvæmt leiðbeiningu frá Aasberg skip- stjóra inundi allvel mega hlíta við 6—7

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.