Ægir - 01.01.1912, Blaðsíða 16
12
ÆGIR.
Kolamarliaðnrinn.
Árið 1910 var lágt verð á kolum, en
við lok ársins og í ársbyrjun 1911 tók
verðið að hækka, og frá þvi í marsmán-
uði steig verðið jafnt og þjett, og i júli-
mánuðigerðu verkamenn á Bretlandiverk-
fall, og siðan hafa kol ekki lækkað í verði,
og er það almenn skoðun, að kol verði
í háu verði nú í ár. Flestar bestu ensku
kolategundir er varla unt að fá með sæmi-
legu verði, því að búið er að selja fyrir
fram fyrir töluvert langan tima það, sem
framleitt verður af þeim kolum. Skotsk
Merker Hamilton Ells-kol haía á hjer um
bil 6 mánuðum hækkað frá 9 sh. til 12 sh.
pr. ton í Glasgow. Hvort verðið hefur náð
hámarkinu nú er ekki gott að segja.
Þann 20. des. s.l. ætluðu fulltrúar fyrir
kolanámuverkamenn að halda fund með
sjer til þess að taka ályktun um verk-
fall, ef námaeigendur hækkuðu ekki vinnu-
launin. Hvort hægt verður að afstýra
almennu verkfalli í þetta sinn er ekki
fullvíst enn, þótt líklegt sje að það takist.
En hin yfirvofandi hætta gerir þó það
að verkum, að hið háa verð ekki að eins
helst við, heldur fer hækkandi.
»Islands-Falk«
er gert ráð fyrir að verði um mánaðar-
tíma í sumar við Grænland, til þess að
líta eftir veiðiskap og verslun utanrikis-
manna þar. Það gæti verið mjög skemti-
legt fyrir athugulan íslending, að fylgja
með skipinu til þess að kynnast þar ýmsu,
sem ef til vill gæti orðið íslendingum til
gagns i framtíðinni, og væri ekki með
öllu óhugsandi, að íslendingar gætu gefið
einhverjar bendingar um, hvernig mætti
best hagnýta auðæfi þau, er þar finnast
til lands og sjávar. Ættu ekki íslending-
ar að nema land á Grænlandi í annað
sinn?
Á meðan á þessum leiðangri »Islands
Falk« stendur, kemur væntanlega »Hekla«
eða »Heimdallur« hingað til að halda
uppi landhelgisvörninni.
íiINS og tekið er fram í lögum Fiskifjelags
íslands verður deildar-fjelögunum send ritþau,
sem fjelagið gefur út, sem svarar 1 rit áhverja
4 meðlimi. Fannig verður Ægir sendur öllum
deildum jafnskjótt og stjórn fjelagsins er tilkynt
stofnun þeirra.
Jafnframt eru pað vinsamleg tilmæli til
allra deildar-fjelaga, að þau sendi blaðinu allar
frjettir og nýungar, er gerast í bygðarlaginu og
að einhverju leyti snerta flskiveiðar, eins og
líka blaðið óskar að fá tillögur og ályktanir,
sem kunna aö vera samþyktar og bornar upp
á fundum deildanna og geta haft þýðingu fyrir
fjelagið í heild sinni.
Skrifstofa
verður opnuð innan skamms í
Templarasundi og verður úr þvi
opin að minsta kosti 2 tíma á dag
d þeirn tima, sem siðar verður d-
kveðinn.
Öll brjef eða fyrirspurnir stýl-
aðar til stjórnarinnar eiga að send-
ast til Skrifstofunnar, enda verður
formaður fjelagsins eða einn úr
stjórn þess til viðtals fyrir þá,
sem þess óska þann tíma, sem
hún er opin.
Prentsmiðjan Gutenberg.