Ægir - 01.08.1917, Síða 18
122
ÆGIR
Þar sem það gæti orkað tvímælis, hvort
vitarnir væru ákveðnir í frv. á sem allra
haganlegustu stöðum, hefir þótt rétt að
setja í frumvarpið ákvæði um, að brej'ta
mætti um vitastæði, ef það kæmi í ljós
síðar, að annar staður þætti heppilegri.
Vitanlega er eigi fyrir að synja, að eigi
geti komið kröfur um vita á enn fleiri
stöðum en gert er ráð fyrir í þessu
frumvarpi, en þá yrði að sjálfsögðu að
koma sér saman um það við vitamála-
stjórnina, en svo virðist, að fyrst um sinn
megi hlita við þann vitafjölda, sem frum-
varpið gerir ráð fyrir.
Heima.
„Þórður kakaliÍÉ,
eign hr. S. Carl Löve á Isafirði, er ný-
smíðað skip og kom hingað i sumar. Það
er mótorskip með G8 h. a. Tuxhamvél,
er 34 tonn að stærð, 65 fet á lengd, 15^/2
fet á breidd og fet á dýpt, hefir 2
patentakkeri og annan úlbúnað ettir n\r-
týsku sniði.
Það sem einkennir þetta skip frá öðr-
um líkum skipum, sem seld hafa verið
til landsins er það, að það er hið fyrsta
og eina skip ennþá, sem hefir raflýsingu,
og er henni lýTst i ritinu »Elektron« 7.
tbl. þ. á. þannig:
»Dynamóin, sem með belti er knúin
af mótor skipsins framleiðir 400 watt
við 14—18 volta spennu. 83 amp. / stunda
rafmagnsgeymir lýsir upp skipið þegar
vélin er ekki í gangi. Á skipinu eru 10
lampar og einn lítill Ijósverpir »refiector«
samskonar og bifreiðar nota.« —
Hr. Löve segir að 10 tíma geti logað
á öllum ljósum skipsins án þess að vél-
in sé í gangi. — í hinum lögskipuðu
topp- og hliðarljóskerum eru rafmagns-
ljós, en skildi eitthvað verða að þeim,
er einnig útbúnaðnr fyrir lögboðin ljós
af vanalegri gerð. Hr. Löve segist aldrei
sjá eftir þvi 2já þúsundi króna, sem
hann borgaði fyrir ljósaútbúnað skipsins.
Eitt er það þó, sem Löve er ekki ánægð-
ur með á skipi sinu, og er það áttavitinn.
Hér, eins og á flestum mótorbátum, er
ilt að stýra eftir honum, en Löve hefir
góða von um, að koma honum fyrir á
þeim' stað, sem greinilega sést á hann.
Án efa verður ljósaútbúnaður þessa
skips til þess að fleiri fari að taka hann
upp.
Ægir óskar hr. Löve til hamingju með
skipið.
„Svanur II.
eign hr. Lofts Loftssonar, er einnig ný-
smíðað skip, og kom hingað til lands í
surnar. Vér höfum eigi haft tækifæri til
að skoða það skip, nema lítið eitt á þil-
fari og er alt þar hið vandaðasta. Eitt er
það þó, sem einkennir það við fyrstu sjón
frá öðrum mótorbátum hér. Það er út-
búnaður til þess að hækka skjólborð
(lönningu) skipsins. Er úlbúnaður sá
einkum ætlaður til þess, að síld tolli
betur á þilfarinu, en getur einnig orðið
til þess, að menn tolli þar betur, þegar
ilt er i sjóinn og stormasamt er.
Útbúnaður þessi er þannig, að í gegn
um hástokkinn er stungið skaftinu á tví-
álmuðum greipum eða forkum, og þvi
fest undir hástokkinn með skrúfaðri ró.
Greiparnar standa svo upp frá hástokkn-
um með jöfnu millibili, og milli álm-
anna er komið fyrir þar til gerðum fjöl-
um, sem þannig hækka hástokkinn tölu-
vert og gera veruna á þilfarinu miklu
öruggari fyrir þá, er þar eiga að vinna í
misjöfnu veðri. — Þessu er fljótlega fyrir-
komið og fljótlegt að kippa þvi burtu og