Ægir - 01.08.1917, Qupperneq 19
ÆGIR
123
allur útbúnaðurinn ódýr, og þess verður,
að hann sé athugaður, því á siglingu
ætti ávalt að nota hann, enda mun hann
reynast hið mesta þing.
Ægir óskar hr. Lofti Loftssyni til ham-
ingju með skipið.
Vitar og sjómerki.
Á Dalatanga (sunnanvertviðSeyðis-
fjörð) er verið að hyggja þokulúðurstöð,
og er gert ráð fyrir, að tekið verði að
starfrækja hana nú í haust, væntanlega
i byrjun októhermánaðar. Lúðurinn gefur
frá sér eitt 3ja sek. langt hljóð einu sinni
á hverri mínútu. Hann er i byggingu
áfastri við vitann og málaðri eins og
vitinn.
Að því er þokulúðra snertir, ber þess
að gæta, sem hér segir:
að aldrei er hægt að vita, hve langt
hljóðið berst; það er algerlega undir
ásigkomulagi loftsins komið. Stundum
getur hljóðið heyrst yfir 10 sm., en
stundum ekki einu sinni 2 sm. Einn-
ig getur komið fyrir, að það heyrist
betur i mikilli en lítilli fjarlægð,
að þoka getur verið á sjó, einkum á
nóttum, án þess að þess verði vart
við þokulúðurinn,
að mjög örðugt er að gera sér grein
fyrir, í hvaða stefnu eða hve langt
maður er frá þokulúðrunum,
að bergmálið frá þokulúðrunum er oft
öðruvísi en hljóðið sjálft, vanalega
lengra og veikara og heyrist stundum
úr öfugri átt,
að samkvæmt framanskráðu ber að
skoða þokulúðurinn aðallega sem
varúðarmerki og til áminningar fyrir
sjófarendur um að sigla hægt og
gætilega og nota »lóðið«.
Sjómerki.
Bæði merkin (vörður með toppmerkj-
um), sem sýna skipaleguna á Lórshöfn
á Langanesi, eru nú fullgerð. Sjá Lögþ.bl.
14. des. 1916, nr. 53.
Lögb.bl.
Erlendis.
Pýsku risakafbátarnir nýsmíðuðu. (Burð-
armagn um 6000 tons, hafa 40 tundur-
skeytahlaup og 12 fallbyssur).
Siðan kafbátahernaðurinn hófst og
augu manna opnuðust fyrir þvi, að hér
var um hernaðartæki að ræða, ógurlegri
og verri viðureignar, en nokkrum hafði
til hugar komið, hafa ýmsar getgátur
verið um útbúnað og endurbætur á þess-
um morðtólum, sem þó að nokkru leyti
íóru í rétta átt, en náðu þó eigi eins
langt og raun er nú á orðin. Það sem
nú er komið á daginn er eftirfylgjandi,
sem tekið er úr þýsku sjóhernaðarriti og
birtist í Norsk Handels- og Sjöfartstiden-
de 14. júlí þ. ár.
Hinir nýju kafbátar eru nú þegar orðnir
afarstór og mikil skip. Þeir eru um 140
metra langir, 11,3 metra á hreidd, rista
7,35 metra er þeir eru ofansjávar, en 9,5
metra, er þeir eru það í kafi, að þak
varðturnsins sé í sjávarskorpunni. Burð-
armagn slíks skips eru 5500—6000 tons.
Mótorarnir hafa 20,000 hestöfl og þegar
sá kraftur er notaður ofansjávar, knýr
hann skipið áfram 28—30 enskar mílur
á ldukkustund, en neðansjávar er hrað-
inn 15 e. mílur. 40 tundurskeytahlaup
eru á þessum skipum, 18 á hvorri hlið,
2 að aftan og 2 fram við stefni.
í hverri ferð hafa þau með sér 76
tundurskeyti, 45 cm. að gildleika, og auk
þess 150 sprengidufl, og hafa öll tæki til
að leggja þeim. Fallbyssurnar eru 11,9
cm. Auk þessa eru ýmsar endurbætur