Ægir - 01.07.1918, Qupperneq 9
ÆGIR
109
með seglum sem önnur skip. Ekki eru
möstur og reiði það smásmíði að þau
séu eða eigi að vera að eins til prýðis,
og eru það heldur ekki, því það er
margsannað að skip þessi koma á segl-
um einum trá útlöndum, og gengur vel
yfir hafið, en er þau eru hingað komin
er það viðkvæðið, að þau komisl ekkert
áleiðis með seglum, en sé það rétt, þá
er að laga það, því lag skipanna sýnir
sig og það eitt sannar, að hér sé ekki
farið með rétt mál, því þau hljóta að
sigla vel, sé seglum hagað eins og ber.
Eg man vel eftir gömlu dekkbátunum
hæði í Reykjavik og í Hafnarfirði, man
eftir Sandgerðis og Rrunastaðabátunum.
Sömuleiðis hef eg séð ýmsa báta á Vest-
urlandi og hafa hvorki þeir né hinir
-fyrnefndu haft fleiri álnir yfir sér, en
mötorbátar }rfirleitt nú. Sumir af gömlu
dekkbátunum höfðu t. d. að eins eilt
mastur og bómutaust stórsegl og fóru
samt yfir stag sem snælda. Þar voru
aðhlynningar og verustaður skipverja
svo, að engum úlgerðarmanni dettur nú
í hug að bjóða fiskimönnum slikt, enda
eru hinir nýju mótorbátar bæði vistlegir
°g vel um þá gengið. — Væri það ekki
gróði fyrir eiganda verðmæts mótorbáts
að ganga úr skugga um það, hvort hans
dýi'a skip er svo meingallað, að það
*komist ekki áfram á seglum og láta bæta
þann galla hið fyrsta, því hér sem ann-
arsstaðar verður vélin álitin hjálparvél
og ætti því heldur að vera og heita svo,
þegar aflið, sem knýr hana er komið í
það verð, sem nú er raun á.
Spurningin er því þessi: Er mögulegt.
eða ómögulegt að halda úti mótorskipum
á haldfærafiskiríi án þess að nota mótor-
inn. Er nokkur leið til þess að spara
olíu að mun og geta þó haldið veiðum
áfram?
Eins og mörgum mun kunnugl hér,
þá hafa Færeyingar notað lýsi á mótora
sína i oliuleysinu. Einn af færejúsku
sendimönnunum sagði mér, að þessi
15rsisnotkun væri komin þar af tilviljun.
Svo stóð á, að maður einn er hafði
prímusvél á heimili sínu fór að reyna,
hvort ekki mætti hafa lýsi í stað stein-
olíu og heppaðist það. ‘Svo var gerð til-
raun á almennum mótorum í bátum og
lýsið blandað 33°/o af vatni og það gekk
einnig. A einúm slíkum bát, þar sem
lýsi var notað tókst þetta svo vel, að
vélin slöðvaðist aldrei vegna þess, að
ólag væri á henni, en sá bátur fór aldrei
út á haf, en minni trú höfðu þeir á lýs-
isbrúkun á þeim bátum sem fóru út á
ósléltan sjó — og munu það helzt ó-
hreinindi sem í vélinni safnast á löngum
ferðum, sem gerir þetta ótryggt, því eftir
2ja daga gang varð að öllu jöfnu að taka
vélar í sundur og hreinsa þær. —
Án efa verður hið sama, eða aðrar
sparnaðarvélar reyndar hér áður langt
liður og tel eg vist að vélfræðingur
Fiskifélagsins Ól. Sveinsson komi með
einhverjar upplýsingar þvi viðkomandi,
er hann kemur aftur frá útlöndum. .
Meðan lýsi er í lágu verði ætti að nola
það í stað hinnar rándýru steinolíu ef
þess væri kostur, en fari nú svo, að
fiskur vrði hér fyrir í haust, þá ætti að
gera tilraun, þegar af sildveiðum kemur
og alhuga, hvað á vantar til þess, að
mótorskipin geti komist ferða sinna
á seglum og hvernig þvi bezt verði kippl
í lag. Þrált fyrir samninga lesum við nú,
hve illa Willemoes gengur að fá olíu-
farm. Enginn veit nema ojíulaust verði
næstu vertíð og hart værí þá, að dýr
skip stæðu uppi, af þeirri ástæðu, að
þau geta ekki siglt, skip, sem að öllu
bera svo langt af þeim dekkbátum og
skipum, sem áður fyr fiskuðu hér með
haldfærum og þóttu þá beztu skip. A