Ægir - 01.07.1918, Page 22
122
ÆGIR
mestar líkur eru til að gæti haft sam-
band við Reykjavíkurstöðina, en leyfi til
að reyna við Lerwick, eða aðra hentuga
slöð á Bretlandi, er enn ekki fengið hjá
Bretum.
í sambandi við loftskeytastöðina hafa
verið settir á stofn loftskeyta- og sím-
ritunarskóla. Skólar þessir eru útbúnir
mcð nýtízku símatækjum og kenslan er
bæði bókleg og verkleg. Forstjóri stöðv-
arinnar stýrir einnig skólunum. Fyrsta
námsskeiðið hófst 1. febr. þ. á. í sím-
ritunarskólanum eru 5 ungir menn, sem
hafa nú lokið fyrri hluta námsins, sem
stóð yfir í vetur, en eiga annan vetur
eftir. 1 sumar hefir þeim verið komið
fyrir hingað og þangað á ritsímastöðvun-
um, en byrja aftur á námi í haust. —
Við loftskeytaskólann luku 4 skipstjórar
minna prófi og eru nú handhafar fyrstu
íslenzku prófskírteina í loftskejdafræði,
sem gefm hafa verið út.
Skipstjórar þessir voru: Guðmundur
Jónsson, Ilafsteinn Bergþórsson, Jóel
Jónsson og Jón Otti Jónsson.
Hinn 17. júní var stöðin opnuð til
almenningsnota.
Vitar og sjómerki.
A Bæjarskeri (norðaustasla skerinu)
við innsiglinguna til Slykkishólms hefir
verið reist sjómerki, um 3 m. hátl, járn-
grind með hvitum þrihyrningi efst, og
veit eitt hornið upp, hin til hliðar.
Lögb.bl.
Alþing’i slitið.
Alþingi var slitið 18. þ. m., hálfri
stundu fyrir hádegi. Fjórðungur þing-
manna var fjarverandi; þeir höfðu farið
af stað heimleiðis um morgunin.
Forseti sameinaðs þings las upp svo-
hljóðandi yfirlit um störf Alþingis 1918.
Fundir:
í neðri deild...................... 74
- efri deild ...................... 68
- sameinuðu þingi ............... 8
Samtals 150
Mál:
I. Frumvörp:
Stjórnarfrumvörp lögð fyrir neðri deild 7
Stjórnarfrumvörp lögð fyrir efri deild 3
Ihngmannafrumvörp borin fram í
neðri deild ...................... 27
Þingmannafrumvörp borin fram í efri
deild ............................ 12
Alls 49
Þar af: Lög frá Alþingi ............. 25
Feld ............................. 11
Tekin aítur.................... 1
Ekki úlrædd ...................... 12
Alls 49
II. Þingsályktunartillögur:
Bornar fram 50.
Þar af: Ályktanir afgr. til sljórnarinnar 27
Um skipun nefnda ................. 9
Feldar .......................... 10
Ekki útræddar .................... 4
Alls 50
III. Fyrirspurnir
Ivomnar fram 8
Þar af svarað 5