Ægir - 01.06.1922, Blaðsíða 7
ÆGIR
73
III. KAFLI.
Um rétt til sldpstjórnar og stýrimensku
i utan- og innanlandssiglingum á íslenzku
fiskiskipi og rélt til skipstjórnar og stýri-
mensku á islenzku verzlunarskipi í inn-
anlandssiglingum eigi yfir 300 rúmlestir.
9. gr. Rétt tíl að vera skipstjóri í inn-
an- og utanlandssiglingum á íslenzku
fiskiskipi og í innanlandssiglingum á ís-
lenzku verzlunarskipi, eigi yfir 300 rúm-
lesta að stærð, hefir sá einn, sem fengið
hefir skipstjóraskírteini á fiskiskipi.
10. gr. Sá einn getur fengið skipstjóra-
skírteini á fiskiskipi, sem:
a. staðist hefir fiskimannapróf eða far-
mannapróf við stýrimannaskólann í
Reykjavík;
b. hefir verið slýrimaður i 18 mánuði
á fiskiskipi, sem er stærra en60rúm-
lestir, eða verið skipstjóri (formaður)
á skipi yfir 20 rúmlestir, og af þeim
tíma minst 12 mánuði stýrimaður á
gufuskipi, ef um gufuskip cr að ræða;
c. er fullveðja;
d. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk-
urt það verk, er svívirðilegt er að
almenningsáliti;
e. sannar, að sjón hans sé svo fullkom-
in, sem nauðsynlegt er fyrir stýri-
menn.
11. gr. Rétt til að vera stýrimaður á
íslenzku fiskiskipi i innan- og utanlands-
siglingum og stýrimaður á íslenzku verzl-
unarskipi í innanlandssiglingum eigi yfir
300 rúmlesta aðstærð, hefir sá einn, sem
fengið hefir stýrimaunsskírteini á fiski-
skipi.
12. gr. Sá einn getur öðlast stýrimanns-
skírteini á fiskiskipi, er:
a. hefir staðist fiskimannapróf eða far-
mannapróf við stýrimannaskólann i
Reykjavík;
b. hefir verið háseti minst 36 mánuði
eftir 16 ára aldur, og af þeim tíma
annaðhvort 18 mánuði báseti á fiski-
skipi stærra en 60 rúmlestir eða 12
mánuði skipstjóri á skipi stærra en
20 rúmlestir og 6 mánuði háseti á
fiskiskipi stærra en 60 rúmlestir;
c. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk-
urt það verk, sem svívirðilegt er að
almenningsáliti;
d. sannar, að sjón hans sé svo fullkom-
in, sem nauðsynlegt er fyrir týri-
menn.
IV. KAFLI.
Um rétt til skipstjórnar og stýrimensku
á verzlunarskipum yfir 300 rúmlesta i
utanlandssigltngum.
13. gr. Rétt til að vera skipstjóri í ut-
anlandssiglingum á íslenzku verzlunar-
skipi og skipstjóri í innanlandssiglingum
á íslenzku verzlunarskipi, sem er stærra
en 300 rúmlesta, hefir sá einn, sem
fengið hefir skipstjóraskírteini í utan-
landssiglingum. Sé um gufuskip að ræða,
hefir sá einn réttinn, sem fengið hefir
einnig skírteíní það, er um getur í 15.
grein.
14. gr. Sá einn getur öðlast skipstjóra-
skírteini í utanlandss glingum, er:
a. er fullveðja;
b. hefir eigi verið dæmdur fyrir nokk-
urt það verk, er svívirðilegt er að
almenningsáliti;
c. sannar, að sjón hans sé svo fullkonir
in, sem nauðsynlegt er fyrir stýri-
menn;
d. hefir staðist hið almenna stýrimanna-
próf við stýrimannaskólann í Reykja-
vík;
e. hefir verið stýrimaður eigi skemur
en 24 mánuði á verzlunarskipi i ut-
anlandssiglingum, og af þeim ttma
eígi skemur en 12 mánuði yfirstýri-
maður, eða einn stýrimaðnr á verzl-
unarskipi f utanlandssiglingum, eða