Ægir - 01.06.1922, Page 17
83
Æ(G I R
Heimasfaboða, Papey og Máfaflasir, hvítt
milli Máfafljesa og Skorbeins en grænt
yfir Skorbein og þar fyrir norðan. Ljós-
ið verður 2 blossar á hverjum 20. sek.:
blossi 1.5 sek., myrkur 4 sek., bl. 1.5,
m. 13 sek. Vitahúsið verður 10 m. há
rauðmáluð járngrind. Efstu 3 m. grind-
arinnar verður timburklætt rauðmálað
með hvítum lóðrjettum röndum. Þar of-
an á 3. m. hátt rauðmálað ljósker. Ljós
magn hvita Ijóssins verður 18 sm., rauða
15 sm., græna 14 sm.
Á Papey þar sem varðan nú stendur
verður viti reistur og mun hann sýna
hvítt ljós milli Skorbeins og Bjarnar-
skers, grænt yflr Bjarnarsker og fri af
Hlöðu, rautt yfir Fjarðarboða og Blót-
ólfsboða, hvítt milli Blótólfsboða og Færa-
baks, grænt yfir Færabak og Kjöggur,
hvítt frá Kjöggur að Hvíting, rautt yfir
Hvíting að stefnu h. u. b. 61° en grænt
þaðan í stefnu á Bóndavörðu og rautt frá
Bóndavörðu og yfir Skorbein. Ljósið
verður 1 blossi hverjar 10 sek., þannig:
blossi 1 sek., myrkur 9. sek. Vitahúsið
verður 5 m. hátt, hvítt steinsteypuhús
með lárjettri rauðri rönd og 3 m. háu
rauðmáluðu Ijóskeri. Ljósmagn hvita
ljóssins verður 19 sm., rauða 16 sm.,
græna 15.5 sm.
Á Karlstaðatanga að austanverðu í
Berufirði, yst á nesinu, verður viti reist-
ur og mun hann sýna hvítt, rautt og
grænt fast ljós með tvímyrkvum, þann-
ig: grænt yfir Bjarnarsker og þar fyrir
norðan, rautt frá Bjarnarskeri yfir Kross-
boða og Kjöggur, hvítt milli Kjöggurs
°g Ystaboða, grænt yfir Ystaboða og
Flyðrusker að Skorbein, rautt yfir Skor-
bein, Lífólfssker, Reyðarssker og Svörtu-
flasir, hvítt yfir leguna á Djúpavogi og
grænt þar fyrir norðan að Æðarhúk.
Vitahúsið verður 3 m. hátt, hvítt stein-
steypuhús með lóðrjettum rauðum rönd-
um; þar ofan á 2.5 m. hátt rauðmálað
Ijósker. Ljósmagn hvíta ljóssins verður
6 sm., rauða 4 sm., græna 3 sm.
Á Æðarhúk við Djúpavog að sunn-
anverðu í Berufirði verður viti reistur
og mun hann sýna hvitt, rautt og grænt
fast Ijós með einmyrkva, þannig: hvítt
inn Beruíjörðinn, grænt fyrir sunnan en
rautt fyrir norðan yfir Krossboða og
Bjarnarsker, hvítt milli Bjarnarskers og
Svörtuflesja, grænt yfir Svörtuflasir og
inn á leguna en rautt þar fyrir sunnan
og verða ljósaskiftin úr grænu i rautt í
þeirri línu sem skip eiga að leggjast.
Vitahúsið verður þriggja m. hátt, rautt
steinsteypuhús með lágrjettri hvítri rönd,
þar ofan á 2.5 m. hátt rauðmálað Ijós-
ker. Ljósmagn hvíta Ijóssins verður 6
sm., rauða 4 sm., græna 3 sm.
Á Hróraundarey, yst á Starmýrartang-
anum milli Hamarsfjarðar og Álftafjarðar
verður viti reistur og mun hann sýna
hvitt ljós milli Helluboða og Máfaflesja
og rautt þar fyrir norðan, grænt yfir
Máfaflasir, Papey og Selsker, hvítt milli
Selskers og Hvítings en rautt þar fyrir
vestan. Ljósið verður 3 blossar á hverj-
um 15 sek., þannig: blossi 0.5 sek.,
myrkur 2.5 sek., bl. 0.5, m. 2,5, bl. 0.5,
m. 8.5 sek. Vitahúsið verður 3 m. hátt
hvítt steinsteypuhús með rauðum tiglum
og 2.5 m. háu rauðmáluðu ljóskeri. Ljós-
magn hvíla ljóssins verður 10 sm., rauða
7.5 sm., græna 7 sm.
Á Stokksnegi sunnan til við Hornsvík
við Vestrahorn, yst á nesinu, verður viti
reistur og mun hann sýna hvítt Ijós alla
leið milli Braka við Eystrahorn og Borg-
eyjarboða út af Hornafjarðarós, en grænt
yfir Brökur og Hvítíng og rautt yfir
Borgeyjarboða og Hvanneyjarsker. Ljós-
ið verður 3 blossar á hverjum 30 sek.,
þannig: blossi 1 sek., myrkur 4 sek., bl.
1, m. 4, bl. 1, m. 19 sek. Vitahúsið verð-