Ægir - 01.06.1922, Síða 18
84
ÆGIR
ur 15 m. há rauðmáluð járngrind. Efstu
3 m. grindarinnar verða timburklæddir,
rauðmálaðir með hvítri lárjettri rönd;
þar ofan á 3'/2 m. hátt rauðmálað ljós-
ker. Ljósmagn hvíta ljóssins verður 20.5
sra., rauða 17 sm., græna 16.5 sm.
Á Hranney, yst á tanganum vestan
við Hornafjarðarós, verður viti reistur
og mun hann sýna hvítt, rautt og grænt
fast ljós með snöggum einmyrkva, þann-
ig: Hvítt milli Þingnesskers og Boigeyj-
arboða en grænt þar fyrir norðan, rautt
yfir Borgeyjarboða, Hvanneyjarsker og
Sveinsboða, hvítt milli Sveinsboða og
Einholtskletts og gramt þar fyrir norðan.
Yitahúsið verður 3 m. hátt, hvítt stein-
steypuhús með lóðrjettum rauðum rönd-
um og 2.5 m. háu rauðmáluðu ljóskeri.
Ljósmagn hvíta Ijóssins verður 6 sm.,
rauða 4 sm., græna 3 sm.
Skip, sem koma að sunnan og leita
til Djúpavogs fyrir innan Papey haldi
Papeyjarvitann hvítan, þangað til Hró-
mundarey skiftir í grænt, en leiti þá inn
í hvíta horn Strætishornsvitans, eða ef
það sjest ekki, inn í hvíta norðaustur-
horn Hrómundareyjarv. Þetta horn sje
haldið þangað til Papey skiftir frá rauðu
í hvítt. Pá er Papeyjarvilinn haldinn hvít-
ur, þangað lil Karlsslaðavitinn verður
grænn, eða, ef græna Ijósið sjest ekki, þá
þangað til hann verðúr hvítur. Karls-
slaðav. er haldinn grænn eða hvftur
þangað til Æðarhúksv. verður hvítur;
er þá haldið inn í þessu horni, þangað
til Karlsstaðavitinn aftur verður hvítur
í suðvestur. Akkerisplássið er í þessu
hvíta horni Karlsstaðavitans, þar sem að
Æðarhúksv. skiflir frá grænu i rautt.
Sje leitað til Djúpavogs fyrir utan Pap-
ey eða úr hafi, skal leita inn í syðra
hvíta horn Strætishornsvitans, sem sýnir
frítt af skerjunum við Papey; þetta
hvíta horn sje haldið, þangað til Karl-
staðav. sjest hvitur, eða þangað til Papey
skiftir í grænt. Er þá stýrt eftir Karl-
staðavita þangað til Æðarhúksvitinn sjest
hvítur, og úr því eins og að ofan er
sagt.
Fyrir skip, sem koma að austan, er
leiðbeining í Kambanesvitanum, sem sýn-
ir rautt ljós yfir Brök, Skrúð og Ein-
boða, þannig að skip, sem ætla þar ut-
an við, leita út i hvíta norðausturhorn
Kambanesv. Skip, sem fara fyrir innan
Einboða, hafa til þess leiðbeiningu í
græna horni Kambanes, í sambandi við
hvíta hornið í Vattarnesvita. Sje farið
fyrir utan skerin skal leitað inn i hvíta
norðausturhorn Papeyjarv. og beygt inn
i hornin í Karlssaða- og Æðarhúksvita,
þegar komið er fyrir Strætishorn, ef farið
er til Djúpavogs, ella skal Strætishornsv.
haldinn hvítur þangað til komið er fyrir
Papey.
Nánari upplýsingar um þessavita verða
birtar seinna.1)
Reykjavík, 2. maí 1922.
í næsta tnánuði mun svartmáluð bauja
(flöt tunna) með svartri stöng upp úr
vænlanlega verða lögð út á 20 m. dýpi
fram af rifi þvi sem er út af Reykjum
austanvert i Hrúlntlrði. Pegar farið er
inn Hrútafjörðinn skal baujan vera bak-
borðsmegin við skipið. Baujan verður
tekin burt þegar ishætta er.
Reykjavík, 26. inai 1922.
Vitamálastjórinn
Th. Krabbe.
') Leiðarvísir pessi virðist nokkuð strerab-
inn fyrir alraenning, en íslendingar eru gófaðir
raenn og tekst efalaust að læra lexíuna, en bana
verður að kunna utanbókar ef vel á að fara. Ritstb
Ritstjóri Sveiubjöru Eglisou.
Prentsmiðjan Gutenberg.