Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.11.1922, Qupperneq 8

Ægir - 01.11.1922, Qupperneq 8
150 ÆGIR þegar þessi nýju skip voru keypt og hið háa verð á fiski freistaði efalaust til kaupanna, Skip eru dýr enn, það sýnir verðið á hinum nýja strandferðabát, kosti hann a/t miljón, en hvað lengi átti að bíða með botnvörpuskipakaupin? Hefði verið beðið með að kaupa 17 skip þangað til nú, frá því árið 1917, þá hefðu bæjarbúar tapað 17 X 100,000 X 5 = 8'/» miljón krónum i vinnulaunum — og þá fúlgu hefði vantað til að greiða fyrir nauðsynjavörur þær, er ómissandi þykja til lifsinx viðurhalds. Útgerðarmenn, sem barist hafa gegn örðugleikum við úthald skipanna á svo mörgum sviðum, eiga fremur lof en last bæjarfélagsins fyrir allar þær áhyggjur, sem þeir daglega munu hafa og óskandi væri það, að vandræði þeirra yrðu aldrei svo, að sama gripi þá og eigendur kútt- eranna forðum, þegar skipin urðu of dýr. Gjaldeyrír sá, sem botnvörpuskipin framleiða er mikið fé fyrir strjálbygt fá- tækt land, og alt er orðið svo stórskorið hér, að botnvörpuveiðar geta ekki hætt, meðan fjöldi útlendra skipa sækir afla sinn á flskimið landsins, en annað mál er það, hvernig þeim verður haldið úti, þegar afgangur, sé nokkur, fer i skatta og afborganir svo ekkert verður eftir til þess að halda skipum við og greiða hlut- höfum rentur af útlögðu fé og mæta lágu verði á fiski næstu úthöfd. Eg hefi minnst á að botnvörpuskipin framfleyttu verkamannaheimilum með 3000 krónum, en bið lesendur gæta þess, að eg dæmi það hvorki nóg né ofllítið kaup. Slíkt fer eftir húsaleigu og öðrum kvöðum í bygðarlagi hverju, en þær 3000 krónur sem á er minsl er sú blessun, sem inn á heimili þeirra manna koma, sem ekki stunda sjó og ekki eru önnum kafnir nema nokkurn hluta ársins, og kemur til manna beint frá útgerðinni. Reykjavik 15. nóv. 1922. Sveinbjörn Egilson. Skip brennur. Mótorskipinu »Vio]a«, sem áður hét »Bolli« og stundaði dragnótaveiði í Norð- ursjónum síðastliðlð sumar, var nýlega siglt á land skamt fyrir norðan Humber- fljótið sökum þess, að kviknað hafði i vélarúmi. Skipverjar komust allir af. Tildrög voru þessi: Hinn sama morg- un, sem eldurinn kom upp, hafði véla- maður farið upp úr vélarúmi til þess að hjálpa skipverjum við seglin, en meðan hann var á þilfari kviknaði í og varð bálið þegar svo, að engin tök voru að komast niður og breiddist eldurinn svo út, að ómögulegt var að vera í stýris- húsinu, og var þá það ráð tekið að úl- búa stýristauma úr köðlum og hafa þá utan á skipinu og stóðu þeir sem skip- inu stýrðu við framreiðann, en hinir unnu að þvi að ausa vatni á stórskautið og seglið. Skipinu var þannig haldið, að vindur stóð um bitahöfuð, svo loginn næði ekki seglinu, en fult i fangi áttu skipverjar með að verja að ekki kvikn- aði í því. Veður hafði verið stormasamt undanfarna daga og sjór svo úfmn að ekki var viðlit að koma skipsbátnum út og því engrar bjargar von nema með því að reyna að ná landi. Um 4 klukku- stundir var skipinu haldið þannig þar til landi var náð. Þeir lentu við enska björgunarstöð og höfðn menn séð eld-

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.