Ægir - 01.11.1922, Side 17
ÆGIR
159
Mótorskip Islands.
Eftir því sem næst verður komist er
tala allra mótorskipa á Islandi 1. nóv.
1922, 552 og auk þeirra eimskipa, sem á
skipaskránni eru ekki nefnd er vafasamt
um eimskip »Dania» eign sameinuðu
islenzku verzlana, sem 1919 er talið með
dönskum skipum, en sem manna á með-
al hér er talin islenzk eign. »EIin«
gamla, sem einu sinni var hér ílóabátur,
síðan seld til Seyðisfjarðar liklega Norð-
mönnum er komin hér aftur til lands,
og á heimili á Siglufirði, en engar upp-
lýsingar eru um það skip að finna. Svo
er »Ludolph Eide«, »Garðar«, »Rolf« og
fleiri, sem ókunnugt er um hvort telja
eigi með íslenzkum skipum eða ekki.
Vonandi koma einhverjar skýringar á
þessu áður langt líður, því gufuskip þau,
sem teljast eign hérlendra manna ættu
þó í það minsta að komast á skrána.
þvi nóg er rúm fyrir þau þar.
Aflinn 1922.
Því miður liggur enn eftir á landinu
mikið af óseldum verkuðum fiski til
stórtjóns fyrir þá, sem enn ekki hafa selt.
Hér sunnanlands fara Keflvíkingar Akra-
nesingar og fl. illa út úr þessu, þvi auk
þess, sem það kostar að reyna að verja
fisk þann skemdum, sem þannig liggur
fram á vetur, er fiskur fallinn mikið í
verði frá í sumar. Sagt er að rýmkun
á Spánartolli hafi lítil áhrif á fiskverð
héðan af, en sala sé greiðari enda flutt
út talsvert af fiski um þessar mundir.
Mr. »Bookless« fiskkaupmaður í Hafn-
arfirði hefir nýskeð gefið sig upp sem
gjaldþrota, og eiga Hafnfirðingar þar á
bak að sjá miklum vinnuveitanda og
fiskfraraleiðendur þeim, sem kevpti af
þeim hinar ringari fisktegundir og heppn-
aðist oft að ná góðu verði fyrir þær.
Isfiskssala
hinna ísl. botnvörpuskipa ágúst —
nóvember 1922.
ísfiskssalan hefir gengið vel hjá mörg-
um skipanna þetta haust og fara hér á
eftir nöfn skipa þeirra, sem flutt hafa út
ísfisk og verð það, sem selt hefir verið
fyrir. Gjaldeyrir £ = pund sterling um
25 kr. 60 aura, íslenzkar krónur.
Síðast í ág. Menja selt f. 840 £
- - — Leifur hepni — - 1260 -
- - — Kári __ . 1890 -
5. sept. Belgaum — - 1160 -
6. — Apríl _ . 758 -
7. — Njörður _ . 958 -
18. — Menja — - 1066 -
20. — Otur — . 1395 -
— — Glaður — . 1058 -
21. — Leifur hepni — . 2028 -
— — Skúli fógeti — . 1197 -
25. — Ari — - 1254 -
— — Gylfi — - 1069 -
30. — Austri — - 712 -
2. okt. Draupnir — - 1735 -
5. — Belgaum — - 1874 -
— — Apríl — - 1136 -
6. — Kári — - 970 -
10. — Njörður — _ 590 -
11. — Menja — . 1005 -