Ægir

Árgangur

Ægir - 01.12.1926, Síða 13

Ægir - 01.12.1926, Síða 13
ÆGIR 245 þegar til konsul Tasker Cook í Newfound- landi og bað hann segja sitt álit um hana — og hvort útlit væri eins ljótt og grein- in skýrir frá. Generalkonsul Böggild hefir nú fengið svar frá konsul Tasker Cook og segir hann, að yfirleitt sé rétt skýrt frá ástandinu í téðri grein. Konsul Cook segir, að á síðari árurn hafi fiskiveiðar við Newfoundland og þó eink- um Labrador-veiðarnar verið mjög rýrar og að verð á verkuðum fiski hafi jafnhliða lækkað, en útgerðarkostnaður og allur rekstur hafi hækkað svo, að góð veiðiferð skips gerir eigi meira en að borga kostn- að við hana. Konsul Cook getur þess, að fyrr á timum hefðu Newfoundlendingar verið vanir að reikna svo, að fyrir 1 kvintal af fiski (45 kg.) fengist 1 poki af mjöli, og þá báru fiskiveiðar sig, en nú verður að láta 2 kvintal til þess að fá 1 poka af mjöli og eftir þvi er alt verð nú. Konsul Cook lítur svo á, að á síðari ár- um stefni hugur ungra manna á New- foundlandi að brottflutningi til Banda- ríkjanna og Canada og hækki fiskverðið eigi að mun í þeim löndum, sem kaupa NewfoundJandsfisk og útgerðarkostnaður og rekstur lækki mikið i náinni framtíð, sé eigi annað fyrirsjáanlegt en, að New- foundlandsveiðarnar leggist niður og sá atvinnurekstur hverfi úr sögunni. Meðal íslenskra fiskimanna horfir nú þetta svo, að fyrir 1 kg. af slægðum og hausuðum þorski, fengu t. d. fiskimenn á Húsavík eftirfarandi verð s. 1. sumar: 1 kg. af stórþorski 12 aura, 1 kg. af smáfiski 8 au. stórýsa 1 kg. 6 aura, smáýsa og smáfiskur undir 12% þumlungi, 2 aura hvert kg- eða segjum og skrifum einn egrir pund. Fiski- sæld hefir verið hin mesta við ísafjarðar- djúp i haust; þar var verð á fiski lítið eitt hærra, stórfiskur hvert kg. 14 aura, smá- fiskur 9 aura og ýsa um 8 aura. Þetta munu fiskimenn nú alment fá fyrir slægðan og hausaðan fisk hér í kauptúnum. Á götum og fisksölustöðum í Reykjavík er markaður fastur, 40—60 aura kg. Fisk- ur, sem farið er að slá í, eða er 2—3 daga gamall fæst fyrir 40 aura kg., en sé reynt að leggja það sem ætilegt er af slíkum fiski á vigt, mun svo reynast, að það er helm- ingur móti því, sem fleygja verður, þvi vanalega eru þá þunnildin ekki æt; getur hver reynt þetta sem vill og verður þá mat- arefni 80—100 aura hvert kg. Ætti að sjóða niður fiskibollur og kaupa nýjan fisk með slori og haus fyrir 50 aura kg. þá er óhætt að reikna að % sé úrgangur, þegar öllum beinum, þunnildum, haus og slori er fleygt og þá væru niðursoðnar fiskibollur dýr matur og ekki til útflutnings. „Öðinn“. Umsjónarmaður skipaskoðunar, hr. Ól- afur T. Sveinsson skýrir svo frá, hvað gert verður við strandvarnarskipið „Óðinn“ og mun dómur manna um gæðin vonandi breytast eftir viðgerð þá, er hann fær. Það hefir verið mikið talað og nokkuð skrifað, um nýja varðskipið „Óðinn“, síð- an hann kom úr eftirlitsför sinni fyrir Norðurlandi. Þessu umtali hefir haldið á- fram eftir að varðskipið var sent til Kaup- mannahafnar til eftirlits, svo sem til var ætlast upphaflega. Ekki ber því að leyna, að i umtali fólks um skipið út af sjófærni þess og þeim á- lyktunum, er dregnar hafa verið út af um- talinu, hefir nokkuð á vantað, að þekking- in á málefninu væri eins mikil og æskilegt hefði verið, og eins hitt, að viljinn til þess að dæma rétt væri ætið til staðar. Vitan-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.