Ægir - 01.01.1929, Page 9
ÆGIR.
MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS.
21. árg.
Reykjavík, — Janúar 1929.
Nr. 1.
Sjávarútvegurinn 1928.
Eftir Kristján Bergsson.
Síðan ég kom til Fiskifélagsins hefi
ég haft það fyrir venju, að skrifa um
hver áramót stutt yfirlit yfir liðna árið,
frá sjónarmiði sjávarútvegsins, til þess
-að hægra sé að fá j'firlit yfir frain-
þróun hans. Væri síst ástæða til að láta
það niður falla nú um þessi áramóti,
þar sem þetta ár, sem uú er nýlega
liðið, er að mörgu leyti það ha])pasæl-
asta, fyrir sjávarútveginn, sem lengi
hefir komið, einkum þó fvrir smáút-
gerðina. Alveg óvenjuleg fiskganga
hefir víðast hvar verið á grunnmiðum.
A sumum stöðum fyrir Norðurlandi,
þar sem venjulega eru ekki stundaðar
fiskiveiðar að vetrinum, má segja að
'góður afli hafi verið alt árið, þegar á
sjó hefir verið farið. Að vísu hleypir
l^etta heildaraflanum ekki svo mikið
fram, þar sem lijer er aðeins um fáa
háta að ræða; en fyrir þá sem stunda
veiðina, og hjeruð þau, sem liennar
njóta, er vinningurinn mikill, þegar afl-
asl þann tíma, sem vinnukrafturinn er
vanalega ónotaður.
ril þess að gera yfirlit þetta ljósara,
vil jeg talca hvern landsfjórðunginn
íyrir sig, eins og verið hefir undanfar-
andi ár, og fer þá eftir sömu skiftingu
með landsfjórðungana eins og er i afla-
skýrslum Fiskifélagsins, en þar er
Sandur, Ólafsvík og Stykkishólmur tal-
ið með Sunnlendingafjórðungi, en
Reykjafjörður og Steingrímsfjörður
með Vestfirðingafjórðungi, Austfirð-
ingafjórðungur er talinn frá Skálum á
Langanesi til Ilornafjarðar, að þeim
báðum stöðum meðtöldum.
Suðurland.
Þar byrjar vertíð strax upp úr ára-
mótum eins og vant er. Þó höfðu
nokkrir hátar farið út fyrir áramótin
og aflað allvel, svo menn bjuggust við
góðri vertíð, eins og líka reyndin varð.
Því strax eftir áramótin var ágætis afli,
en notaðist illa, því fram allan janúar
voru sífeldir stormar og töluverð snjó-
koma, en siðustu daga af janúar gerði
ágætis veður, sem hjelst nokkurn tíma,
og var þá ágætis afli i öllum verstöðv-
um í kring um Faxaflóa. — í Vest-
mannaeyjum aflaðist líka all vel á lóðir
í janúarmánuði, eftir því sem þar ger-
ist þann tima árs.
Fléstir togararnir stunduð ísfiskveið-