Ægir - 01.01.1929, Qupperneq 10
ÆGIR
2
ar í janúar og fram eftir febrúar, og
var ísfisksala ágæt þá mánuði. Eins og
árið áður, var sjávarhitinn fyrir ofan
meðallag', og má ætla, að það hafi liaft
sin áhrif á fiskigöngurnar, og hvað fisk-
ur gekk víða og snemma upp að land-
inu. Eins og árið áður virtist hrygn-
ingarfiskur ganga lengra norður eftir
en vanalega. Veiði togaranna var lield-
ur rýr á Selvogsbanka, og fyrir Suð-
urlandinu, en aflinn hetri út af Jökli
og i Jökuldjúpinu.
Það er enginn efi á, að við gerum
okkur of lítið far um að rannsaka hita
og seltu sjávarins kring um landið alt
árið. Þvi væri það gert stöðugt, svo að
samanburður fengist um langan tíma,
gæti það eflaust orðið nokkur leiðbein-
ing um það, hvers við mættum vænta
um afla eða göngu þorskfiskanna. Ætti
varðskipum vorum, sem eru á ferð
flestan tíma ársins alt í kring um land-
ið að vera lítil töf að því, þó skipverj-
ar þeirra gerðu slíkar athuganir.
Eins og árið áður stunduðu Akranes-
ingar veiði sína að heiman frá hinni
nýju hryggju sinni á Lambhússundi, en
fluttu sig ekki til Sangerðis, með háta
sína yfir vertíðina eins og áður var.
Hefir það haft mjög milda og góða
þýðingu fyrir útgerðina þar, síðan þeir
fengu þær liafnarbætur lijá sjer, enda
fjölgar nú hátum þar töluvert.
I öllum hrimstöðvunum á Reykja-
nesskaga, var ágætis afli og alstaðar
töluvert betri en árið áður, sem þó var
talið nijög gott ár. Að vísu hefir það
hjálpað mikið til, að nú er húið að setja
smávélar í flesta árabátana og liefir sú
breyting haft mjög mikla þýðingu.
Slærri línubátum (gufuskipum) lief-
ir fjölgað mikið á Faxaflóa nú á seinni
árum, og hafa þeir gefist svo vel, að
mikill áhugi er vaknaður hjá mönnum
fyrir þeirri tegund skipa. Líklegt að
þeim fjölgi meira á næstu árum, enda
eru þeir að mörgu leyti hentugir bæði
til þorsk og sildveiða, þar sem þeir geta
fjdgt veiðinni betur eftir, og stunduðu
sumir þeirra þorskveiðar frá Siglufirði
og Vestfjörðum nú í haust með góðum
árangri, eftir að síldveiðin var úti.
/ Vestmannaegjum má lieita að verið
hafi góð vertíð og um tíma, var þar
mjög mikill uppgripaafli en hvarf svo
mjög snögglega. Frá 1.—15. apríl veidd-
ust þar 14,790 slcpd., á sama tima 1927
8,812 skpd., en 1926 8,770 skpd. og 1925
5,700 skpd. Alls veiddust þar í apríl-
mánuði 22,065 skpd. eða rúmlega % af
öllum þeirra vertiðarafla.
1 Höfnum og Miðnesi var ágætisafli,
og' er mikill hugur þar í mönnum að
auka útgerð sína. Eru það litlir opnir
mótorhátar, sem reynast þar lieppileg-
astir. Var þar allgóður reitingsafli
fram eftir öllu sumri og hausti, en sá
afli fer að mestu leyti nýr til Reykja-
víkur. Sömuleiðis haustaflinn frá
Stokkseyri og Eyrarbakka, en þar var
allgóð veiði seinni hluta liaustsins, þeg-
ar á sjó gaf. I Vestmannaeyjum var
einnig' allgóður afli seinni hluta hausts-
ins, og í Faxaflóa var kominn allgóður
afli snemma í desembermánuði.
Síld fór að veiðast snemma í mai-
mánuði í Faxaflóa, og var eftir það
jafnan nægileg beita, en bátar þeir, sem
ætluðu að stunda síldveiðar seinni part
sumarsins í Faxaflóa og fiska fyrir ís-
húsin þar, fengu mjög lítið, og \ar því
megnið af beitusíldinni flutt suður frá
Norðurlandi, eins og verið hefir und-
anfarin ár. Aftur á móti var allgóð sild-
veiði um liaustið í Ólafsvík og Grund-
arfirði, og kom það sjer vel, að Grund-
firðingar voru nýbúnir að koma sér upp
myndarlegu frystihúsi með vélafryst-
x