Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1929, Síða 12

Ægir - 01.01.1929, Síða 12
4 ÆGIR nrabátarnir alveg að leggjast niður til t'iskiveiða. Verður að telja það mikla framför að láta vélarnar taka við „barn- ingnum“, sem svo margan hefir þreytt. Efnaliagur manna hefir því batnað mikið á Vestfjörðum nú á þessu ári, því auk þess að árið hefir verið mjög gott aflaár, þá hefir fiskverðið verið miklu Iiærra en árið áður. Yfir vorið r,’iin vcrðið viðast liafa verið fyrir fisk hausaðan og slægðan 18 aura pr. kg. fvrir stórfisk, en 12 aura fvrir smáfisk, í fyrravor var verðið á sama tíma 14 og 9 aurar. Siðasf i apríl var svo mikill afli inni i ísafjarðardjúpi, að menn muna ekki annan cins, og tvíhlóðu bátar þar oft sama daginn. Við is varð vart um miðjan maí. Var þá töluverð hafísbreiða fyrir Strönd- mn, frá Reykjarfirði vestur að Rit, og hamlaði það töluvert togaraveiðum á þvi svæði um tíma. En urn það bil var góður afli á togara á Hornbanka. Norðurland. Vanalega er lítill þorskafli fyrir Yorðurlandi fvrstu mánuði ársins. Þó liafði út af þessu brugðið tvö undan- farin ár, þar sem fór að fiskast norður við Grímsey strax eftir áramótin (sbr. skýrslu míria i 1. tbl. Ægis 1928). Var nú strax eftir áramótin töluvert fisk- vart út af Eyjafirði fyrstu mánuði árs- ins, og yar sú veiði aðallega stunduð af hátum frá Siglufirði i janúar- og febrú- armánuði. En gæftir voru stopular, svo að veiði þessi hafði ekki veruleg álirif á aflamagn fjórðungsins. I byrjun mars kom fiskiganga að Norðurlandinu, og um það bil fóru margir bátar út að Grimsey til að fiska þaðan. En mikið var sú vertíð rýrari i ár en undanfar- andi ár; enda var alment beituleysi þar, þvi ný síld fékst ekki á Akureyri, og því eklci önnur beita en fryst síld frá haustinu, og liún af skornum skamti. 24. mai fékst hafsíld i reknet út af Siglufirði. Mun það vera í fyrsta sinn, sem hún hefir fiskast þar svo snemma, enda líklega ekki gerðar tilraunir ti) þess fvrri. —- Eftir það var ágætisafli fyrir Norðurlandinu alt sumarið. Var þorskveiðin stunduð þar meira yfir sumarið en áður liefir verið, því að margir liátar, sem áður hafa stundað síldveiðar með reknet að sumrinu, breyttu aldrei um veiðiaðferð, en stund- uðu þorskveiðar alt sumarið. Hjálpaði það til, að verðið var hátt á saltfiski, og eftirspurn mikil alt sumarið, en verð- ið á sildinni lieldur lágt, því að síld- veiðin var altaf jöfn og mikil, og barst milcið meira að af lienni en þurfti til söltunar, en reknetaveiði er vanalega ekki svo uppgripamikil, að það borgi sig að fiska til bræðslu með því veiðar- færi. Að loknum síldveiðunum fóru flestir bátar frá Norðurlandinu, er síldveiðar liöfðu stundað, og eins nokkrir bátar annarsstaðar að — þar á meðal nokk- ur línuveiðagufuskip — frá Suðurland- inu, sem stundað höfðu síldveiðar yfir sumarið, á þorskveiðar frá Siglufirði, og aflaðist þá ágætlega fram eftir öllu hausti. Hélst þessi afli að lieita mátti út alt árið, þegar að veður yefðu, en síðustu mánuði ársins var veiði þessi ekki stunduð, nema af nokkrum bátum, sem heima áttu á Siglufirði. Aflinn í Norðiendingafjórðungi hefir þvi orðið meiri á þessu ári en nokk- urntíma áður, eða til 1. des í ár 44,752 skpd. af verkuðum fiski, á móti 27,248 skpd. á sama tíma i fyrra, sem þó var talið ágætis aflaár þar. Það er enginn vafi á því, að fisk-

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.