Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1929, Blaðsíða 19

Ægir - 01.01.1929, Blaðsíða 19
ÆGIR 11 anda, eða þá selja til bræðslu. Aftur á móti hefir þessum ósamn- ingsbundnu bátum oft tekist að fá mjög hátt verð fvrir veiði sina, þegar lítil síldveiði befir orðið, og eftirspurn befir verið mikil eftir nýrri síld. En það má búast við, að þessi hækkun sje eftirleið- is útilokuð, með sölufyrirkomulagi Einkásölunnar að borga alla sumar- framleiðsluna sama verði. Verðið á síldinni nýrri var talsvert lægra en tvö undanfarandi ár, eða ca. 9 kr. málið til bræðslu og 12 kr. til sölt- unar. Undanfarandi ár var verðið 11— 13 kr. til bræðslu og 15—16 kr. til sölt- unar. En sökum þess livað veiðin var góð mun samt allur fjöldi skipanna hafa haft hagnað af síldveiðinni. Um uerðið á síldinni saltaðri er ekki liægt að segja ennþá, þar sem reikn- ingsuppgjör Einkasölunnar eru ekki komin. Opinberlega hefir ekki verið gefið upp, fvrir livaða verð hún hefir selt. En öll sumarframleiðslan cr sögð löngu seld, og er slíkt óvanalegt. Síidareinkasalan lét gera ýmsar til- raunir, með margbreytilegri verkun á sild en verið hefir, og má gera sér miklar vonir um, að þær tilraunir muni auka álit íslensku sildarinnar, og gera hana víðar þekta en verið hefir. Þó mun síldarsalan aðallega hafa beinst til Svíþjóðar i ár, eins og undan- farandi, og tilraun sú, sem gerð var síð- astliðið ár með sölu á sild til Rússlands féll niður á þessu ári. Seinni hluta sumarsins og um liaust- ið veiddist töluvert af smásíld og mill- umsíld á ísafirði, var hún söltuð og flokkuð eftir stærðum, og' mun það mesta liafa verið selt til Þýskalands, og að því er sagt er, fyrir hátt verð. Þátttaka Norðmanna í síldveiðinni hér við land mun vera lík og undan- farandi ár. Er talið að um 160 norsk skip muni hafa tekið þátt í síldveiðum hér að þessu sinni. Eru sum þeirra stór flutningaskip, svo að útgerð þeirra mun kosta töluvert. Alls fiskuðu þessi skip og verkuðu liér við land 145000 tunnur á móti 181784 árið áður. Eru þeir nýbyrjaðir á því að kryddsalta nokkuð af síldinni um borð í skipun- um, en til skamms tima var það aðeins gert á stöðvum i landi. Væri það illa farið, ef að við mistum þá möguleika úr höndum okkar, því að sú verkunar- aðferð iiefir jafnan borið sig best hér, og verð á þeirri vöru ekki eins breyti- legt og á saltsíldinni. Bræðslustöðvar hafa allar verið starf- ræktar þær sömu á þessu ári, og und- anfarandi ár, því stöðin í Krossanesi, sem brann að nokkru leyti árið áður, var bygð upp svo snemma ársins að bún var starfrækt með fullum krafti alt sumarið. Það eru því aðeins stöðv- arnar á Dagverðareyri og Raufarhöfn, sem ekki liafa verið starfræktar i ár. Togaraveiði og fisksala. Veiðin á togarana gekk ekki vel á árinu, því þótt ársframleiðslan sé nærri 100 þús. skpd. meiri en í fyrra þá má beita að veiðin á togara sé sú sama; aukning framleiðslunnar kemur þvi eingöngu á línuveiðaskipin og smá- útgerðina. Þar sem fiskbirgðir voru tiltölulega litlar i byrjun ársins og því gott útlit með sölu á fiski þá fóru sumir togar- arnir á saltfiskveiðar strax eftir ára- mótin og böfðu sumir þeirra aldrei hætt veiðum, en hinir flestir byrjuðu veiðina í febrúarmánuði. Tafla II nær yfir saltfiskveiði 44 tog- ara að nokkru eða öllu leyti, eða yfir 504 veiðferðir í samtals 7167 veiðidaga

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.