Ægir

Årgang

Ægir - 01.01.1929, Side 27

Ægir - 01.01.1929, Side 27
ÆGIR 19 starfsemi og eru orsakir sagðar ýms- ar; veltur þar sem i öðru mest á for- gangsmönnunum. Á Sjálandi eru alls starfandi 22 sam- vinnufélög fiskimanna (á þessum stöð- um: Kalundborg, Ivöge, Skelskör, Vor- dingborg, Masnedsund, Gilleleje, Hunde- sted, Havnsö, Rödvig, Korsör, Klint- holm, Havn pr. Borreholm, Reersö, Holbæk, Sjællands Odde, Faxe Lade- plads, Karrebæksminde, Roskilde, Drogden, Kastrup, Kallebave og Horn- bæk. Eru flest þessara félaga yngri en jósku félögin, en hafa einkum hvað snertir sölu á fiski innanlands látið mikið að sér kveða. Af félögum fiski- manna á Sjálandi liafa að eins 2 hætt starfsemi og var nú verið að endur- reisa annað þeirra er eg var á ferð. Auk fisksölunnar hafa félögin víðasl á hendi sameiginleg innkaup fyrir fiskimennina beint frá verksmiðjunum og er sá mismunur jafnaðarlega talinn 10%. Á Fjóni og öðrum smærri eyjum í Dan- mörku eru einnig starfandi samvinnu- félög fiskimanna, en ekki tókst mér að vita um tölu þeirra, en sendi með skýrslunni 1 eintak af lögum félagsins í Langö. Eins og eg lika sendi lög fé- laga á Jótlandi og Sjálandi, bæði sam- vinnufélaga og fiskifélaga (sölu-sam- lög). Auk liinna einstöku félaga hefir hver landshluti samband fyrir öll félögin. Samband jósku félaganna hefir höfuð- stöðvar í Fredericia en sjálensku fé- lögin í Roskilde (Hróarskeldu) og fjónsku félögin í Kerteminde. Nú í ár hefir líka verið stofnað sam- band fyrir alt danska ríkið fyrir þessa samvinnu. Er því einkum ætlað að fást við hin stærri verkefni, sem ofviða eru hinum einstöku samböndum og félög- um. Mun samband þetta einkum bafa beint starfsemi sinni að því að koma skipulagi á útflutning af fiski, sem mest er bundinn við Þýskaland. Samband sjálensku félaganna hélt 24. s. 1. fjölmennan fund fiskimanna í Hróarskeldu til þess að ræða um til- búning, umbúðir (innpökkun) og sölu á fiskifileter (beinlausum fiski). Hefir á yfirstandandi ári verið flutt allmikið af slíkum fiski frá sjálensku félögun- um til Þýskalands (yfir Hamborg) Byrjaði útflutningur þessi í febrúar og var verðið 1.05—80 au. fj7rir kg. fol) Gilleleje eða Kaupmannahöfn. í s. 1. aprilmánuði var send reynslusending af fiskifilet til Ziirich (í Sviss) sem kom þangað eftir 5 daga og rej'ndist þá al- veg óskemd. NTýr fiskur verkaður á þennan hátt or- talinn hafa nær því óþrjótandi mark- að um alla Mið-Evrcpu og hefir sala bans aukisl mikið síðustu árin. Uxn jnnpökkun á fiskinum eru nú gerðar strangar kröfur og er ætlast til að 1 kg sé i hverjum pakka sem Jjuið sé uin i pergaments-pappir og að auki i vönduðum ísfyltum kössum eða körf- um. Með þeim flutningatækjum sem t.nn eru fyrir hendi hér á landi kemur varla til þess að ræða verði um mikla solu á þennan hátt, þó væri vel þess vert að reyna að gera reynsm-sendingu meðan kaldast er í veðri með fisk sem annars er lítil markaðsvara hér á iandi. Tækist þetta væri þar með cpnaður markaður fvrir verðlitinn fisk, eins og t. d. steinbítinn sem likl. væri einhver besti fiskur til slíkra hluta, þar sem Iieinin eru fremur lítil. Hjá dönskum fiskimönnum er litið til þessa útflutnings mestu vonaraug- um og nú í s. 1. maímánuði fór sendi-

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.