Ægir

Volume

Ægir - 01.01.1929, Page 29

Ægir - 01.01.1929, Page 29
ÆGIR 21 innar, þarf ekki að vera úr hópi þeirra er lánsfélag ætla að mynda, en sc kunnugur fiskiveiðum. í 3. gr. er ákveðið: a) Tilgangur félaganna skal eingöngu vera að veita meðlimum reksturs- lán um stundarsakir til útvegunar eða aðgerðum á reksturshlutum til viðhalds á atvinnu þeirra; 1)) i félögum má eingöngu taka sjó- menn sem uppfylla skilyrði 2. liðs 1. gr. (sjá hér að framan) um at- vinnuskilj'rði og efnahag; c) enginn félagi má samtímis vera nema í einu lánsfélagi. Gildir ákvæði þetta einnig um eldri lánsfélög; d) frá útlánum dragast 5% af upphæð- inni til mj'ndunar á varasjóði; e) allir félagar verða slysa- og líf- trygðir; f) venjulegast skal ekki lána hverjum einstakling nema 500 krónur. Þó á- kveður félagsstjórnin upphæð lána sem borgast út mót skuldabréfi. Lán einstakra manna greiðist á sama hátt og lán félaganna úr lánssjóði atvinnuveganna (Erlivervenes Laane- fond). Stjórn félaganna ákveður greiðsluskilyrði og vaxtakjör, sem hvorttveggja á að vera jafnt fyrir alla félaga; g) stjórn félaganna er ólaunuð og skipuð 3 mönnum, formanni og 2 meðstjórnendum og eru þeir valdir á aðalfundum, en formaður, sem ekki þarf að vera félagsmaður, er valinn af fiskimálastjóranum eftir tilnefningu stjórnarmanna þeirra, sem aðalfundir kjósa. Aðalfundir kjósa einnig 1 endurskoðanda, sem ckki þarf að vera félagsmaður; h) ágóði við reikningsskil skal leggjast i varasjóð, sem skal ávaxtaður í hanka eða sparisjóði; i) sýni reikningsskil tap, sem orsakast hefir af útlánúm til félaganna, sem cigi er liægt að greiða af varasjóði eða með tillagi úr lánssjóði atvinnu- veganna (samkv. fyrirmælum 4. gr., síðustu málsgr.), skal tapinu strax skift og innheimt hjá meðlimum, eflir ákvæðum í samþyktum félag- anna; k) það, sem félögin eiga til góða lijá meðlimum, má setja að veði; l) sjóður félaganna skal ávalt geymd- ur í hanka eða sparisjóði og eru peningar aðeins greiddir eftir kvitt- un eða ávísun félagsstjórnar; m) enga brevtingu má gera á samþykt- um félaganna nema með samþykki landbúnaðarráðuneytisins; n) félögunum er skvlt að senda land- búnaðarráðuneytinu allar upplýsing- ar sem það kann að heimta um starf- semi og fjárhag þeirra og eru undir eftirliti ráðuneytisins um að félögin starfi i samræmi við lög þess og samþyktir félaganna; o) félagar hvers einstaks lánsfélags mega ekki vera færri en 10, nema landbúnaðarráðuneytið samþykki. í 4. gr. laganna er ákveðið: Lán til einstakra félaga mega eigi vera hærri en sem svarar 500 kr. á hvern félagsmann. Lánin ávaxtast með vöxtum sem ákveðnir eru áður en lán er veitt, eftir þeim vaxtakjörum, sem ríkið sjálft getur fengið ódýrust lán. Fyrir hvern árshelming, reiknað frá 1. apríl lil 1. október, ákveður landbún- aðarráðuneytið vaxtakjör þeirra lána, sem veitt verða á þeim árshelmingi. Lánin eru afborgunarlaus fyrstu 2 ár- in og afborgast þar eftir á 10 árum með 10% árlega. Fyrir endurgreiðslu lána og vaxta, eru allir félagsmenn í saineigin- legri áhvrgð.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.