Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1930, Blaðsíða 4

Ægir - 01.10.1930, Blaðsíða 4
214 ÆG I R þess var lagður, og þangað til það var afhent félaginu. Skýrði hann frá því, að sér hefði ver- ið það mikið ánæjuefni, hve skipasmíða- stöðin í Frederikshavn hefði gert sér mik- ið far um, að vanda skip þetta sem bezt. Honum fórust orð á þessa leið: »Eins og kunnugt er, er skip þetta E. Stefánsson, skipstj. á »Detlifoss«. byggt með það fyrir augum, að það geti rúmað sem mestan farm, en farþega- rúm tiltölulega lítið. Lít ég svo á, að félaginu sé slikt skip hentugast eins og nú horfir við. Pað er í aðalatriðum svip- að »Brúarfoss«, en »Dettifoss« rúmar 500 smál. meiri flutning. Hann hefir og sterkari vél en »Goðafoss«, og jafnframt er vél hans sparneytnari á kol. »Detti- foss« hefir svonefnda Lenfz-vél, sem er ný tegund og eru eigi fleiri en 10—12 smíðaðar af þeirri gerð. Vél þessi eyðir 0,55 kilo af kolum pr. indic. hestafl, er skipið er á ferð, en hún befir 4 strokka o: 2 tvíþensluvélar. Hin skipin eyða með þríþensluvélum sinum, 0,66 kilo af kol- um pr. indic hestafl. Séu skipin »Goðafoss« og »Dettifoss« borin saman, með 1100 hö., þá eyðir hið fyrr nefnda 15,5 smál. af kolum á sólarhring, en »Dettifoss« 13,5. Er bæði skipin liggja jafn djúpt í sjó, fer »Goða- foss« með 1100 hö., 11 sjómílur á kl.stund, en »Dettifoss« fer 12 sjómilur, einnig með 1100 hö. Þrennskonar stýristæki eru á »Detti- foss«; á stjórnpalli er stýrt með svo nefndri Telemotorvél, á öðrum stað er gufustjórntæki og aftast er handhjól; hin tvö síðarnefndu eru til vara. Kolarúm »Dettifoss tekur 312 smál., og er það nægilega stórt til þess, að skipið þurfi aldrei að taka kol nema þar, sem þau eru ódýrust. Iíappkostað hefir verið að gera alla smíði skipsins sem vandaðasta. svo við- haldskostnaður verði lengi vel sem allra minnstur. Ýmsar merkar nýjungar. Er Emil Nielsen sýndi mönnum »Detti- foss« í gær, benti hann á ýmsar mikils- verðar nýjungar í smíði og útbúnaði skipsins. Er það sýnilegt, hvar sem litið er um skipið, að séð er fyrir þvi, að ör- yggi sé sem allra mest, og útbúnaður sem haganlegastur og traustastur, ef eitt- hvað ber út af. Tvennskonar stýrisút- búnaður er t. d. á afturdekki skipsins. Par er stór og vandaður vélbátur, bæði til björgunar og eins til þess að nota, ef á þarf að halda, við uppsldpun. Báts- uglurnar við bát þennan eru af nýrri gerð, þannig útbúnar, að mjög auðvelt er að setja bátinn á flot, þótt ósjór sé við skipið. Vél skipsins er að ýmsu leyti vand- aðri en í öðrum skipum félagsins. í henni eru ekki rennilok fyrir gufuna, heldnr fjaðralok. Gerir sá útbúnaður gang skipsins öruggari í stórsjó.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.