Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1930, Blaðsíða 17

Ægir - 01.10.1930, Blaðsíða 17
ÆGIR 227 þar sem kvenfólk og unglingar, slægja og þvo fiskinn i þar til ætluðu rúmi. Þaðan er hann færður á annan stað i húsinu, þar sem hann er tvi-saltaður, og látinn standa, þar til hann er fluttur til Danmerkur, þar sem fullnaðarverkun fer fram. Godthaab. Godthaab má telja aðalstöð fiskveið- anna og fram með firðinum eru fiski- veiðar stundaðar af miklum áhuga, og nú upp á siðkastið á nýtízku mótorbát- um, sem Grænlendingar eiga. Skipið »Disko« kom til Godthaab um kveldið hinn 26. ágúst. Meðan vörur voru látnar í uppskipunarskip á hinni svo nefndu Skipshöfn og iluttar i vöru- geymsluhús nýlendunnar, hafði ég tæki- færi til að skoða hið margbreytta fyrir- komulag í þessum höfuðstað Grænlands. Eins og áður er sagt, eru fiskveiðar aðalatvinna landsmanna og um það leyti, sem ég var þar í sumar, var búið að leggja inn til verkunar 650,000 kilo af þorski. Hér og annarsstaðar, er siður að leggja fiskinn inn afhausaðan, en flaltur og hreinsaður er hann á móttökustöðv- unum. Áður fyrr þótti Grænlendingum ekki sæma karlmönnum að stunda fiskveiðar. Nú er öldin önnur því nú vinna þeir við veiðina á öllum fjörðum og fram með þeim og margir hafa nú nóg að býta og brenna, sem áður áttu við harð- an kost áð búa. Eg heimsótti fiskimann, sem lét í ljósi ánægju sína yfir hinum miklu framför- um á fiskveiðum og sölu afurða og þakkaði hann Grænlenzku stjórninni þær. Hann skýrði mér frá, að fyrir fáum ár- um, hefði hann verið meðal hina snauð- ustu heimilisfeðra í nýlendunni og átti þá heima i gömlum hrörlegum moldar- kofa — en nú bjó hann i þokkalegu húsi, sem hann og sonur hans höfðu reist. Sonurinn er að læra smíðar og efnið keyptu þeir fyrir 2000 krónur, sem þeir höfðu inn unnið sér með fiskveiðum. Auk þessa trúði gamli maðurinn mér fyrir því, að hann ætti talsvert á spari- sjóði. Frá hinum nýja atvinnuvegi, fisk- veiðum koma efnin, til að eignast nýja bústaði og gera við þá gömlu, og má hvervetna líta framfarir í þessa átt á öllu Suður-Grænlandi. Um 10 hús var verið að smíða í Godthaab, þegar ég var þar. Sykurtoppurinn og Holstensborg. Líkar framfarir og hér er um getið eru einnig sjáanlegar í nálægum nýlend- um, Sykurtoppinum og Holstensborg. í hinni fyrrnefndu, stjórnar fiskifor- maður Nielsen veiðunum; hefir hann búið á Grænlandi í mörg ár. Til þess tíma er ég var á ferð, hafði fiskstöðin tekið á móti 1 millión kilogr af þorski, sem verkað, var fyrsta flokks vara, eins og hún er bezt. Meðan ég dvaldi þar voru rigningar og margir á ferð í nýlendunni. Allir rómuðu mjög framfarirnar og allt ber vott um, að bæði hér og í Kanagmiut, sem er skammt frá, uppalist fiskimanna- stétt, áhugasöm og iðin. Fiskimennirnir hafa stofnað smá hluta- félög hér og þar og halda í félagi úti mótorbátum og hafa til þessa staðið í góðum skilum með afborganir sínar. Líkt má segja um næstu nýlendu Holstensborg. Auk fiskiveiða, reka ný- lendumenn einnig lúðuveiðar, sem færir þeim góðan arð. Af stöðum þeim, sem ég heimsótti, virtist mér Holstensborg hafa orðið fyrir mestum áhrifum menn- ingar. Dag þann er ég dvaldi þarna, komu margir mótorbátar til Holstensborg; voru

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.