Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1930, Blaðsíða 19

Ægir - 01.10.1930, Blaðsíða 19
ÆGl R 229 Af því, sem ég hefi sagt hér á undan, sést, að framfarir mega heita stórfelldar á Grænlandi, að fiskveiðar og fjárrækt hafa breylt lifnaðarháttum og áhuga landsmanna. Vinna þeirra er arðmeiri og bústaðir betri en áður og þessum framförum fylgja aðrar framtiðarhugs- anir. Þá vantar tungumál, viðtækara en grænlenzkuna og það eru þeir þegar farnir að finna og skilja. Skipströnd. Föstudaginn 3. okt. strandaði vélbát- urinn »ErIingur« á Meðallandsfjörum. Báturinn var á leið til Gerða í Garði frá Frederikssund, þar sem hann var smíðaður. 3 Danir voru á bátnum og björguðust þeir í land og komust til bæja. Varðskipið »Ægir« fór austur að strand- staðnum til þess að reyna að bjarga skipinu, en það heppnaðist eigi vegna brims. »Ægir« flutti skipverja hingað til Reykjavikur. Aðfaranótt 15. okt. rak Iinuveiðarann »Óskar« frá Vestmannaeyjum á sker við Lundey í Skagafirði innarlega. Brotnaði skipið fljótt, rann af skerinu og sökk á fjögra faðma dýpi. Mann- björg varð greiðlega. Skipið var við dragnótaveiðar nyrðra. »Óskar« varsmið- aður í Beverley 1890 og var 152 smál. að stærð. Eigandi skipsins var Gísli Magnússon útgerðarm. í Vestmannaeyjum. Hvalveiðar við Færeyjar. Til hvalveiðastoðvanna á Færeyjum hafa alls verið fluttir þ. á. 172 hvalir, þar af til Lopra á Suderö 102 og til stöðvarinnar við Air 70. Mikið af hval hafði sést við eyjarnar í lok útgerðartímans, en bæði var veðr- ið óhagkvæmt til veiða og hvalurinn svo styggur, að litt mögulegt var að komast í færi. /N. H. T.l. Mann tekur út af bv. „Ólafi“. Aðfaranótt 10. okt. tók út mann af botnvörpuskipinu »ólafur« og drukknaði hann. Skipið var þá statt fyrir sunnan land, á leið frá Englandi. Maðurinn hét Ágúst Gissurarson, ógiftur maður um þrítugt. Hann átti beima í Hafnarfirði. Brezka loftfarið „R. 101“ ferst. Laugardaginn 4. október þ. á. lagði loftfarið »R. - 101« af stað frá Englandi áleiðis til Karachi á Indlandi. Var klukkan rúmlega 71/* um kvöldið er af stað var lagt. Á skipinu voru 5 foringjar, 37 menn til ýmsra starfa, 11 farþegar og meðal þeirra, flugmálaráðherrann, Thompson lávarður og forstjóri almennra flugferða (Civil aviation) Sir Sefton Brancker. Var búist við að ferðin til Indlands tæki 6 daga, með skammri dvöl við Ismaila i Egyptalandi. Yfir hæðinni Allonne á Frakklandi varð eittbvað að þá hina sömu nótt, loftfarið féll til jarðar, kviknaði þá í því og af 53 skipverjum og farþegum, biðu þegar 46 bana og tveirdóu síðar af brunasárum. Nákvæmar fréttir af þessu hroðaslysi birta nú öll blöð itarlegar en rúm leyfir í »Ægi«. Reynsluflug fór þetta bákn hinn 14. okt. 1929, er það annað loftfarið af þess- ari gerð, sem Bretar missa.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.