Ægir - 01.10.1930, Side 21
ÆGIR
231
pöntun liggi ekki fyrir. — Kaupskyldu
skal þó ekki beita á þeim stöðum, sem
stjórnin telur sérstökum vandkvæðum
bundið að afhenda olíu á.
Ef ekki er hægt að afgreiða allar pant-
anir, skal stjórnin draga úr þeim eftir
því sem hún álítur réttast.
Hugmyndin er sú, að smiða olíugeyma
i samráði og samvinnu við fiskifélögin í
fiskiverunum, eftir því sem efni félags-
ins leyfa, svo að hægt verði að flytja
oliuna inn í olíuflutningaskipum.
Uthluta skal oliunni í sem nánastri
samvinnu við héraða- og sveitafélög
fiskimanna, og skal útvega fyrirfaam-
pantanir eftir því sem unnt er.
Þá er lagt hefur verið fé í varasjóð og
afskrifað af eignum, er áætlunin sú, að
oliukaupendur fái nokkura uppbót, sem
aðalfundur ákveður. Uppbót þessi má
þó aldrei nema hærri fjárhæð á ári en
greidd er í hluthafa ágóða.
Ms. „Ameta“ ferst.
18. okt. fór M/s »Ameta« frá Reykjavik
með ýmsar vörur áleiðis til Hornafjarðar.
Uegar kom austur að Dyrhólaey hreppti
skipið ofveður og kom að því mikill leki,
svo viðbúið var að það mundi sökkva.
Uáfu skipverjar þá neyðarmerki með
fingeldum og kom þá þýzki togarinn
»Harvestehude« frá Cuxhaven þeim til
hjálpar og heppnaðist skipshöfn »Ameta«
að komast um borð í togarann. Þar sem
Ijóðverjarnir álitu að »Ameta« gæti
haldist á floti enn lengi, fóru 3 menn
skipshöfn togarans um borð í hana
°g komu festum á milli skipanna. Hélt
togarinn svo til Yestmannaej'ja með
»Ameta« í eftirdragi; en er sýmilegt var
að hvergi var hægt að leggjast þar fyrir
sjógangi, hélt togarinn áfram áleiðis til
Reykjavikur með »Ameta«. En er komið
var vestur undir Selvog slitnuðu dráttar-
taugarnar og hvarf þá »Ameta« skyndi-
lega. Er talið að hún muni hafa sokkið
allt i einu og þeir 3 Þjóðverjar, sem
voru um borð, drukknað. Leitaði togar-
inn lengi, en varð einskis vísari. —
»Ameta« strandaði fyrir nokkrum árum
í Grænlandi og var norskur selveiðari
sendur vestur, sem átti að draga hana
til Noregs. 1 hafi, vestur af Reykjanesi,
slitnaði »Ameta« aftan úr selveiðaranum
og rak hana nokkru seinna upp í Breiða-
fjarðareyjum, með menn þá, sem voru
um borð í henni, heila á húfi. Skipið
náðist út og var gert við það. — »Ameta«
var byggð í Noregi 1917 og var 181 br
smál. að stærð. Eigandi skipsins var
G. Juul, lyfsali á Isafirði.
Toll-undanþága í Brazilíu.
Tilskipun, sem gefin var út í Brazilíu
9. okt., veitti undanþágu frá tolli í 60
daga á nokkrum matvælategundum. —
Samkvæmt símskeyti 24. þ. m., frá
sendisveit Dana i Rio de Janeiro til
ulanríkisráðuneytisins, hefir verið ákveðið
að undanþága þessi skuli einnig ná til
saltfisks, en á hann hefir verið sett
hámarksverð í Rio de Janeiro, 3200 Réis.
(Frá Sendiherra Dana).
Kviknar í vélbáti.
Aðfaranótt 29/io kl. 4, var slökkviliðið
kallað út á höfn. Hafði kviknað í vélbáti frá
Isafirði, er lá úti á höfninni. Heitir báturinn
»Jón Valgeir«. Á bátnum var eldhús ofan
þilfars. Kviknaði í því og brann það alveg,
en þá tókst að slökkva eldinn, svo að ekki
varð meira tjón af.