Ægir - 01.04.1936, Blaðsíða 18
96
Æ G I R
F u n d u r s í 1 d v e i ð i m a n n a
í Buckie.
A fjölmennum fundi í Buckie á Skot-
landi, var hinn 18. fehri sl. borin fram
sú tillaga, að senda konungi áskorun
um, að hann vildi lieita sér fyrir því,
að liinir l)ágslöddu síldveiðimenn fengju
styrk frá ríkinu, svo þeir gætu stundað
veiðar framvegis. Sömuleiðis var farið'
hörðum orðum um aðgerðaleysi stjórn-
arinnar i þessum efnum og Itcnl á, að
hér væri um ekkert annað að ræða en,
að stjórnin léti skríða til skarar og veitti
þá aðstoð, sem þyrfti.
Bæjarstjórnin í Buckie, hoðaði til fund-
arins og gat fundarstjóri þess, að ástæð-
an væri sú, að bæjarstjórn sæi, að til
vandræða horfði, ei' stöðugt drægi úr
fiskveiðum bæjarmanna og ungir menn
flyttu í hópum til annara staða i land-
inu, vegna atvinnuleysis.
Hann gat þess, að árið 1913, hefðu 90
þúsund fiskimenn og verkamenn verið í
bænum. Nú væru þeir að eins 58 þús.
og liskimenn, sem áður voru 34 þúsund,
eru nú að eins 23 þúsund. Arið 1913
voru 63 þúsund fiskimenn í Noregi, en
6(5 þúsund 1929. Dönskum fiskimönnum
hafði á sama tíma fjölgað úr 17 þús-
undum í 18 þús. í Svíþjóð, Rússlandi
og Þýzkalandi, fjölgaði fiskimönnum, en
í Hollandi liafði þeim fækkað um 3000,
en það stafaði af, hve margir höfðu
fasta vinnu við þurkun á Zuyder Zee.
A það var l)enl á fundinum, að Bret-
land væri hið eina land, sem að Norð-
ursjó lægi, sem hókstaflega hefði ekkert
gerl fyrir fiskimenn, hvorki í orði né
verki. Ýms mál, er varðaði flskimenn
og atvinnu þeirra, voru tekin fyrir á
fundinum og að lokum har skipstjóri
William Murray fram, eftirfarandi tillögur.
1. »Með því öllum fundarmönnum er
ljós afturför, sem orðin er á síldveið-
um og sölu sildar, sem nú virðist hafa
náð hámarki og þeir sem nú eiga sæti
í síldarsölunefnd geta ekki ráðið fram
úr yfirstandandi vandræðum, þá heinir
fundurinn þeirri áskorun tíl rikistjórn-
arinnar, að hún nú þegar, endurskipu-
leggi síldarsölunefndina til þess að að-
stoða fiskimenn, svo þeir framvegis geli
stundað atvinnu sína og séð fyrir sér og
sínum — og, að ríkið veiti tryggingu
fyrir greiðslu á afla, er þeir færa á land,
svo að þeir verði eigi fvrir meira fjár-
tjóni, en þegar er orðið«.
2. »Fundurinn skorar á ríkisstjórnina
að vinda nú bráðan hug að fyrirskipa
öílugár ráðstafanir til að hjarga atvinnu-
vegi þessum, áður en orðið er of seint
að reisa hann við«.
Skipstjóri Murray liætti því við, að á
stríðsárunum hafi hann evðilagt 15
sprengidufl og bjargað með því 11 mat-
vælaskipum.
Skipstjóri Alexander Cowie studdi til-
lögurnar og l)ætli við: »Skyldi ríkisstjórn-
in neita að sinna kröfum fundarins, þá
verður að senda þær til konungs«.
Tillögurnar voru samþykktar í einu
hljóði. Síðan var samþykkt, að síma öll-
um þingmönnum, í sjávarútvegsnefnd
brezka þingsins, .tillögur þær, er hornar
voru upp á fundinum og þar samþykktar.
(Fishing News).
20. apríl hófust samningar
milli Noregs og Spánar, um rýmkun
á fisksölu Norðmanna lil Spánar og
greiðslu fyrir fisk, er þangað verður send-
ur og samningstilraunir um greíðslu á
innstæðum Norðmanna fvrir seldan fisk
á Spáni.