Ægir - 01.04.1939, Blaðsíða 14
96
Æ G I R
uin, sem liafa fært á land milljónir fiska,
eru nii gengnar lil livílu.
Þýtt.
r
Framhaldsaðalfundur S. I. F.
var haldinn þriðjudaginn 18. apríl. Aðal-
verkefni furidarins var stjórnarkosning.
Nokkurt ósamkomulag var um stjórnar-
kösninguna og varð sá endir á, að fram
fór hlutfallskosning og komu fram 4 lisl-
ar, er allir komu að mönnum.
Kosnir voru:
Magnús SigurÖssori, bankastj.
Jón Árnason, framkvæmdarstj.
Jóhann Þ. Jósefsson, alþm.
Sigurður Kristjánsson, alþm.
Ólafur Jónsson, útgerðarm., Sandgerði.
IJr stjórninni hafa því gengið Helgi
Guðmundsson, bankaslj. og Ólafur Ein-
arsson, framkvæmdarstj. í Hafnarfirði.
Atvinnumálaráðherra liefir skipað tvo
menn í stjórnina, þá Geir Thorsteinson, út-
gerðarmann og Jónas Guðmundsson,
ritstjóra.
Á fundinuin var samþykkt tillaga, þar
sem Pétri Ottesen, Ólafi Thors og Skúla
Guðmundssyni voru þökkuð vel urinin
störf í þágu útvegsins. Auk liennar sam-
þykkti fundurinn eftirfarandi tillögur:
„Aðalfundur S. I. F. skorar á Samlagsstjórn-
ina, að bcita sér fyrir því við rikisstjórnina,
að framvegis sé öllum útflytjendum islenzkra
afurða, án undantekningar, gert skylt að af-
lienda bönkunum þann erlendan gjaldeyri, er
fyrir afurðirnar fæst, og jafnframt verði lagt
fyrir bankana að láta yfirfærslur til útlanda
fyrir beinar nauðsynjavörur til framleiðslunn-
ar, þar á meðal einnig fyrir efni til viðhalds
skipastólnum og greiðslur fyrir nauðsynlegar
vörur, ganga fyrir greiðslum á öðrum vöru-
skuldum. Jafnframt sé lagt fyrir bankana, að
stitla i hóf svo sem unnt er öllum þeim kosn-
aði, sein á fellur við gjaldeyrisverzlun þeirra.“
Flutningsmaður Ólafur Anðimsson, útgerðar-
maður í Vestmannaeyjum.
„Aðalfundur S. í. F. skorar á ríkisstjórn og
Alþingi að fella niður öil úfflutningsgjöld, sem
enn hvíla á útfluttum sjávarafurðum, þ. á. m.
líka gjaldið lil Fiskimálasjóðs, enda sé verksvið
Fiskimálanefndar tekið til athugunar og það
hversu þeim störfum megi bezt koma fyrir
framvegis, sem nefndin hefir liaft með hönd-
um.“ Flutningsmaður Jóhann I>. Jósefsson.
„Framhaldsaðalfundur S. í. F. lialdinn i
Reykjavík 18. apríl 1939, samþykkir eftirfar-
andi ályktun:
1. Þar sem löggjafarvald þjóðarinnar hcfir
nú sýnt sjáyarútvéginum þá sanngirni að leið-
rétta gamalt ranglæti i garð framleiðslustétt-
anna til lands og sjávar, með því að færa
skráningu ísl. krónu í það horf, sem útvegs-
menn mega vel við una, þá litur fundurinn svo
á, að nú sé komið til kasta útvegsmanna sjálfra
um það að gera ráðstafanir til þess að tryggja
það að sinu leyti, að þær liagsbætur, sem fengn-
ar eru með þessu, komi útvegsmönniun að sem
fyllstum notum.
2. Þar sem nú er vitað mál, að aðkeyptar er-
lendar vörur hljóta að slíga i verði við geng-
isbrevtinguna, og þá engu síður nauðsynjavör-
ur til útgerðar, að óbreyttum verzlunarliátt-
um þeim, er útvegsmenn eiga við að búa, og
þar sem af þessu hlýtur að leiða það, að auk-
inn tilkostnaður gleypir að verulegu leyti þann
hagnað, sem vænst er að útvegsmenn.gætu ann-
ars haft af réttlátri gengisskráningu, telur fund-
urinn sjálfsagt, að athuga beri alla möguleika
lil þess að'koma í veg fyrir það, að hækkandi
verð á nauðsynjavörum útveginum til handa
geri þessa ráðstöfun löggjafans þýðingarlausa
fyrir afkomu útvegsins.
3. Að öllu þessu athuguðu telur fundurinn
rétt, að þar sem sjávarútvegurinn hefir nú þcg-
ar stofnun, seiii annast sölu saltfiskjar fyrir
féJagsmenn, með óumdeilanlegum árangri lil
hagsbóta fyrir þá, miðað við annað hugsanlegt
fyrirkomulag, að athugaðir verði allir mögu-
leikar á því, að starfsemi þessa félagsskapar,
sem þegar er fyrir hendi, verði útvíkkuð svo,
að hún taki einnig lil sölu fleiri sjávarafurða,
og einnig til innkaupa á nauðsynjavörum út-
vegsins fyrir félagsmenn.
4. Ályktar fundurinn því að slcipa 5 nianna
nefnd útvegsmanna, til þess að rannsaka það,
liversu því yrði við komið, og skila áliti sínu
og tillögum fyrir næsta aðalfund.