Ægir - 15.01.1963, Side 18
12
ÆGIR
á árið og er nú orðin tilfinnanleg lækkun
á því frá því, sem var fyrr á árinu.
Heimilað útflutningsverð á því er nú
komið niður í 15/3 shillinga fyrir pro-
teineininguna pr 1000 kg. cif. — Sala á
síldarmjöli er nú mjög treg og birgðir
safnast upp.
Spáir þetta því miður ekki góðu með
þorskmjölsverðið, þó að um aðra mjöl-
tegund sé að ræða, því áhrifa hlýtur að
gæta frá verði síldannjölsins.
Tryggvi Ólafsson:
Þorskalýsisframleiðslan 1962
Framleiðsla þorskalýsis á árinu 1962
nam alls 7311 tonnum og er það 363 tonn-
um meira en 1961.
Framleiðslan skiptist þannig milli tog-
ara og báta, tölurnar í svigum frá 1961:
Togarar 576 tonn 7.9% (840 12,1%)
Bátar 6735 tonn 92,1% (6106 87,9%)
Vegna minni
framleiðslu á
þorskalýsi undan-
farin tvö ár hefur
lítið verið selt út
úr landinu til
smjörlíkisgerðar
(herzlu). Kom það
sér vel síðastliðið
ár að þurfa ekki
að selja mikið á
þennan markað
vegna hins lága
verðs á síldarlýsi
og öðru búklýsi sem var ríkjandi meiripart
ársins. Verð á meðalalýsi og fóðurlýsi hef-
ur að vísu lækkað mikið á undanförnum árr
um en það stafar af minnkandi notkun
og harðri samkeppni á heimsmarkaðnum.
Útflutt þorskalýsi á árinu er 5285 tonn,
til herzlu innanlands hafa farið 650 tonn
og til innanlandsnotkunar meðala- og fóð-
urlýsi um 100 tonn. Birgðir nú um ára-
mót eru um 3136 tonn, eða 1275 tonnum
meira en um næstu áramót á undan.
1 herzluna innanlands var eins og áð-
ur eingöngu notað þorskalýsi en vegna
verðmunar á síldarlýsi og þorskalýsi hefði
verið hagkvæmara að nota síldarlýsi. Til
þess vantaði til viðbótar vélar í herzlu-
stöðina og er nú verið að afla þeirra. Þeg-
ar vélar þessar verða komnar í not mun
hægt að herða allar þær lýsistegundir, sem
hér falla til.
Á árinu var lögð mikil áherzla á sölu
meðalalýsis og var það selt til allmargra
landa, sem ekki höfðu áður keypt frá Is-
landi. íslenzkt þorskalýsi er nú selt til
40—50 landa í öllum heimsálfum.
Þó að nú horfi vel um sölu búklýsis,
má ekki gera ráð fyrir hækkun á verði
þorskalýsis á árinu 1963. Ástæðan er sú
að þorskalýsi lækkaði ekki eins mikið og
síldarlýsið og hefur sú hækkun, sem þeg-
ar er orðin á síldarlýsi engin áhrif á
verðlag þorskalýsis. Verði áframhaldandi
hækkanir á síldarlýsi má reikna með á-
hrifum slíkra hækkana á þorskalýsi
6—12 mánuðum eftir á.
ÚXVEGUiVI PAPPÍBSPOKA undir fiskmjöl og sfldarmjöi frá pappírspokaverksmiöjunni
M Petersen & Sön, Moss, Norge. — Mjög hagstætt verö. Upplýsingar hjá umboösmanni.
KAUPUM: Allar tegundir af lýsi, hrogn, fiskmjöl, sildarmjöl, skreiö, grásleppuhrogn og
tómar tunnur.
SELJUM: KaldhreinsaÖ meöalalýsi, fóöur-
lýsi, lýsistunnur, vítissóda, salt og kol i
heilum förmum, nótabáta, björgunarbáta og
vatnabáta úr aluminíum.
BERNH. PETERSEN
Pósthóif 1409 - Reykjavík - Simi 11B 70.
Símnefnl: Bemhardo.