Ægir - 15.01.1963, Síða 24
18
ÆGIR
og gerð. Gerbreytingar hafa þá átt sér
stað í meðferð og geymslu sjávarafurða.
Fiskvinnslustöðvar verða reistar úti í sjó,
annað hvort sem floteyjar eða tilbúnar eyj-
ar á staurum. Á eyjunum verða fullkomin
aðstaða til að taka skip í þurrkví, afferma
þau og framkvæma bráðabirgðaviðgerðir
á þeim. Þarna geta sjómenn hvílzt og lát-
ið sér líða vel, og þar verður hægt að vinna
úr og geyma afla veiðiskipanna. Það er
hugsanlegt, að vinnslustöðvar á hafi úti
verði hluti af föstu gildrunum og taki við
fiski beint úr smærri bátunum. Með grein-
inni fylgir mynd af slíkri vinnslustöð, þar
sem loftbólutjald beinir göngufiski að
ákveðnum stað þar sem hann er svæfður
með rafmagni og síðan fluttur á færibandi
upp á þilfarið. Vinnslustöðin getur þannig
jöfnum höndum tekið við fiski úr gildr-
unni og unnið aflann. Þessi aðferð hefur
ýmsa kosti, meðal annars fæst mun betri
markaðsvara úr fiskinum, og er það auð-
vitað stórt atriði.
Við affermingu er smáskömmtum af
geislavirkum efnum blandað í fiskinn til
að hindra gerlavöxt, sem getur reynzt
skaðlegur meðan verið er að vinna aflann.
Stærð skammtanna og gerð fer eftir eðli
hráefnisins, hvaðan það kemur og til
hvers á að nota það, Eftir vinnsluna er
svo varan látin í loftþéttar umbúðir og
gerilsneydd með gammageislum. Með
þessu móti fær hún ótakmarkað geymslu-
Skeldýr verða ræktuð við skilyrði, sem henta þeim
bezt til vaxtar.
þol, jafnvel við stofuhita, og heldur bragði,
gerð og útliti.
Gera má ráð fyrir, að árið 2000 verði
ekki aðeins fiskur og skeldýr veidd til
manneldis, heldur einnig þörungar og
jafnvel svif. Þörungarnir verða ræktaðir
við strendurnar í stórum stíl. I sjónum
er um tífalt meira af svifi en matfiskum
og um hundrað sinnum meira en af rán-
fiskum. Aukin þörf eggjahvítuefna úr
dýraríkinu, að viðbættri örri tækniþróun,
mun valda því, að árið 2000 verður orðin
mikil breyting í fæðuvali okkar, og sú
fæða verður þá í þeirri mynd sem aðgengi-
legust er. Margar fæðutegundir verða þá
í pilluformi eða stöngum, svipað og fisk-
stengur nú. Áherzla verður lögð á nærandi
innihald og notagildi þess fyrir líkamann.
Hugsanlegt er, að fiskur verði þá mik-
ilvægari en nú til nota við sérstakt matar-
æði vegna sjúkdóma í meltingarfærum.
Hið auðmelta vel uppbyggða eggjahvítu-
efni fisksins er einkar hentugt við tilbún-
ing á fæðumauki, sem til dæmis yrði not-
að handa geimförum.
Nýjustu rannsóknir. hafa leitt í ljós
mikilvægi fisks við að draga úr choleste-
rol-myndun í blóðinu. 1 náinni framtíð
mun mönnum skiljast til fulls sambandið
milli ómettaðra fituefna og hjartasjúk-
dóma. Margt bendir til, að fiskolíur séu
sérlega hentugar til að minnka choleste-
Vinnslustöð þar sem loftbólutjald beinir göngufiski að
ákveðnum stað, þar sem hann er svæfður með raf-
magni og síðan fluttur á færibandi upp á þilfarið.