Ægir - 15.01.1963, Blaðsíða 25
ÆGIR
19
Fiskaíuröir munu sjá geimförum fyrir eggjahvituefni.
rol-magnið, og því er það okkar álit, að
fiskurinn muni verða árangursríkt tæki í
baráttunni við æðakölkun og afleiðingar
hennar.
Mikið er nú rætt og ritað um efnahags-
bandalög og breytingar á viðskiptaháttum
þjóða í milli. 1 framtíðinni getum við búizt
við því, að verzlunin í heiminum verði milli
fárra en stórra viðskiptaheilda. Um næstu
aldamót geta þær ekki aðeins verið komn-
ar á í Evrópu, heldur einnig í Afríku, S.-
Ameríku, N.-Ameríku og Suðaustur-Asíu.
En það eru ekki bara viðskiptamálin,
sem hafa minnkað heiminn, heldur hafa
líka mikilvæg fiskimið dregið lönd og þjóð-
ir nær hvert öðru. f sívaxandi mæli eru
veiðiflotar helztu fiskveiðiþjóðanna að
sækja í sömu fiskistofna á sameiginleg-
um miðum. Það kemur til kasta alþjóða-
samtaka, svo sem FAO og UNESCO, að
setja reglugerðir um veiðar á úthafinu
og um vernd fiskistofnanna. Nýting auð-
æva hafsins á svæðunum næst Norður- og
Suðurheimsskautinu, auk hluta af Vest-
ur-Kyrrahafi og heitari svæða Atlants-
hafsins, mun verða sett undir einhvers
konar alþjóðlega stjórn á næstu fjórum
áratugum. Ef stórar fiskveiðiþjóðir, eins
og Rússar, Japanar og Bandaríkjamenn fá
að auka veiðar sínar að vild á fjarlæg-
um miðum, án þess að til komi eftirlit á
breiðum grundvelli, er ekkert líklegra en
vaxandi sókn á miðin leiði fyrst til gíf-
urlegrar aukningar í fiskframleiðslu og
síðan hruns, þegar ofveiði færi að gæta.
Hins vegar mun fiskframleiðsla á svæð-
um, þar sem einhvers konar eftirlit er
fyrir hendi, aukast almennt á vissu tíma-
bili, þó að þar megi alltaf búast við ein-
hverjum sveiflum.
Mítsui & Co. Ltd.
Aðalskrifstofur: OSAKA, JAPAN
UTVEGUM frá japan
Nylon þorskanet
Nylon silunganet
Nylon ýsunet
Nylon síldarnætur
Nylon herpinætur
Nylon tauma
Nylon kaðla
Nylon togvörpur
Terylene kaðla
Öngla og nylontauma áhnýtta (ábót)
Hi-Zex togvörpur
Hi-Zex kaðla
Nylon netin og nætumar eru úr liinu framúrskarandi sterka „AMILAN“
gami, framleiddu af Toyo Rayon Co. Ltd., Japan.
Leitið upplýsinga og tilboSa hjá umboðsmönnum:
STEINAVÖR H.F.
Norðurstíg 7, Reykjavík. — Sími 24120 .