Ægir - 01.04.1966, Side 12
106
ÆGIR
TAFLA UM FISKAFLANN 1965
Á öðrum stað í blaðinu birtist tafla um
heildarfiskafla íslendinga á árinu 1965 og
samanburðartölur fyrir árið 1964.
Venjulega eru töflur um fiskaflann birt-
ar án sérstakra skýringa, enda skýra þær
sig að mestu sjálfar. Þar sem hinsvegar
ýmsar mikilvægar grundvallarbreytingar
voru gerðar á skýrslukerfi Fiskifélagsins
á s. 1. ári, þótti rétt að láta fylgja með
að þessu sinni nokkrar skýringar í sam-
bandi við birtingu lokaskýrslunnar um afla
sl. árs. Mikilvægasta breytingin er í því
fólgin, að öll úrvinnsla afla- og vinnu-
skýrslna fer nú fram hjá Skýrsluvélum
ríkisins og Reykjavíkurbæjar. Eru allar
upplýsingar þaraðlútandi settar inn á sér-
stök spjöld, sem hinar fljótvirku skýrslu-
vélar vinna úr. Mikið hagræði fylgir þessu
fyrirkomulagi. Verður bæði unnt að flýta
skýrslugjöfinni, gera hana öruggari og
síðast en ekki sízt verður auðveldlega hægt
að fá allmiklu fjölbreyttari upplýsingar en
áður. Að sjálfsögðu byggist þetta allt á
því, að útgerðarmenn og vinnslustöðvar
skili tilskyldum gögnum til Fiskifélagsins
á réttum tíma.
í sambandi við þessar breytingar hefur
reynzt auðveldara að gera ýmsar leiðrétt-
ingar á skýrslunum. f þessu tilfelli er um
að ræða nokkrar leiðréttingar á aflatölum
ársins 1964. Bætast við 1393 lestir af síld,
er landað var í Noregi í des. 1964, og 757
lestir af humar. f síðara tilfellinu var
um rangar umreikningstölur að ræða.
Fyrir árið 1965 er um eftirfarandi
leiðréttingar að ræða, sem hafa ber í
huga, er aflaskýrslur mánaðanna nóv. og
des. eru bornar saman.
í lok nóvember höfðu eftirgreindar töl-
ur reynzt vanreiknaðar:
1. Þorskafli................ 1855 lestir
2. Krabbadýr .... 509
3. Loðna .... 123
4. Kolkrabbi .... 153
Um þetta má segja: Þorskaflinn skipt-
ist meira og minna á alla mánuði ársins.
Krabbadýrin aðallega á tímabilið júní/
ágúst. Loðna kemur á apríl og kolkrabb-
inn á sept.
Síldaraflinn á tímabilinu jan./nóv. er
hinsvegar oftalinn um 17.723 lestir, sem
kemur aðallega fram í sumaraflanum.
S JÓSTÍ G VÉLIN
Gamla gúða mei’kið
FULLHÁ — ÁLÍMD — LÁG og
með lausum svampg-úmmísóla.
TRETORN GÚMMÍVETTLINGAR
Einkaumboðsmenn:
JÓN BERGSSON H.F.
Laugavegi 178 — Reykjavík — Sími 85-3-35