Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 15.06.1972, Qupperneq 22

Ægir - 15.06.1972, Qupperneq 22
220 JE GIR VÉLSKÓLANUM SLITIÐ Vélskóla íslands var sagt upp 27. maí. Við skólaslitin hélt Andrés Guðjónsson skólastjóri ræðu, þar sem hann rakti ýtar- lega skólastarfið um veturinn og framtíð- arhorfur skólans. Hann nefndi sem dæmi um þau þrengsli, sem skólinn ætti nú við að búa, að nemendur 1. stigs hefðu verið í vetur á hrakhólum milli stofa, anddyris, matsals og hátíðarsals, en allt hefði það gengið næstum snurðulaust. Af þessum sökum varð að neita all-mörg- um nemendum um skólavist í haust eð var, en fullkomin ástæða sé til að ætla að sú saga endurtaki sig ekki, því að skólinn fái pláss í þeirri nýbyggingu, sem verið er að reisa austan við Sj ómannaskólahúsið, og verði raftækjasalurinn væntanlega til- búinn á hausti komanda. Gamla raftækja- salnum verður þá breytt í kennslustofur. Einnig eru líkindi á að Veðurstofan rými 3 stofur í norðurenda vélahússins og verða þær þá teknar fyrir kennslustofur í verk- legri kennslu í stýritækni, kælitækni og véltækni, en þá kennslu er nauðsynlegt að auka. Skólinn þarf einnig, sagði skólastjórinn, að koma sér upp fleiri smíðastofum, kaupa fleiri rennibekki, hefla, fræsivélar ásamt skrúfstykkjum og handverkfærum. Síðast liðinn vetur var hafin kennsla í rafsuðu og gassuðu og fór hún fram í Iðnskólanum. Nokkuð er um úreltar vélar í skólanum, hreina safngripi, og verður, til dæmis, gömul gufuvél úr línuveiðaranum Sigríði, gefin Þjóðminjasafninu. Þessi vél var smíðuð um aldamótin, einnig verður hafð- ur sami háttur á með aðra gufuvél, sem smíðuð var 1889 og var notuð í saltfisk- þurrkunarhúsi Alliance h.f. á sínum tíma. Skólastjóri sagði lítinn tíma til félags- starfa í skólanum sökum anna nemenda við námið. Hann sagði að nú hefðu nem- endur skólans fengið aðild að lánasjóði ís- lenzkra námsmanna og utanbæjarnemend- ur fengju svonefndan dreifbýlisstyrk. All- mikil breyting varð á kennaraliði skólans á árinu. Fyrirhugað er að auka rafmagns- fræðikennsluna mikið. Fjárveiting hefur og fengizt til kaupa á tækjum í raftækjasalinn. Skólastjórinn fór nokkrum orðum um nauðsyn á því, að eldi’i og starfandi vélstjórum væri gefinn kostur á endurhæfingarnámskeiðum, og sagði að bæði úr þeirra eigin hópi, svo og útgerðarmanna, hefði verið spurt um, hvenær skólinn gæti veitt aðstöðu þessum eldri mönnum til að kynna sér nýjungar. „Vei, þeim manni í dag, sem heldur, að hann sé útlærður og geti eða þurfi ekki að læra meira“, sagði skólastjórinn. Akureyrar- og Vestmannaeyjadeild Deildum Vélskólans á Akureyri og í Vestmannaeyjum var sagt upp laugardag- inn 20 maí. Á Akureyri gengu 17 nemendur undir próf í 1. stigi; 16 stóðust prófið og 14 hlutu framhaldseinkunn. I 2. stigi gengu 8 undir próf: 6 stóðust prófið og 4 hlutu framhaldseinkunn. Forstöðumaður skólans á Akureyri er Björn Kristinsson. I Vestmannaeyjum gengu 17 nemendur undir próf í 1. stigi; 15 stóðust prófið, en 11 hlutu framhaldseinkunn. I 2. stigi gengu 10 undir próf og stóðust allir, en 9 hlutu framhaldseinkunn. Forstöðumaður skólans í Vesmannaeyjum er Jón Einars- son. Vélsmiðjan Magni í Vestmannaeyjum gaf áletrað gullúr þeim, sem hlaut hæstu einkunn í vélfræði úr 2. stigi, en það vai' Gústaf Guðmundsson. Vélstjórafélagið í Vestmannaeyjum gaf bókaverðlaun þeim, sem hlaut hæsta einkunn í vélfræði í 1- stigi, og hlaut þau Friðrik Jósepsson. Á

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.