Ægir - 15.03.1974, Side 8
Nokkuð minna var framleitt af ufsaflök-
um og blokkum. Framleiðslan varð 12841 lest.,
sem var 629 lestum eða 4,7% minna en 1972.
Frysting á humar og rækju minnkaði úr
1576 lestum 1972 í 1336 lestir 1973, eða um
15,2%.
Framleiðsla á hörpudiski féll niður úr 854
lestum árið 1972 í 480 lestir 1973. Eins og
greint var frá í yfirliti í Ægi í ársbyrjun 1973
yfir hraðfrystiiðnaðinn 1972, hafði hin gífur-
lega mikla framleiðsla þess árs mikla vei'ð-
lækkun í för með sér. Þá höfðu takmarkandi
aðgerðir innanlands minnkandi framleiðslu í
för með sér.
Loðnufrysting 1973 var 15.668 lestir, sem var
um fjórfalt meira magn en árið áður. Með það
í huga, að vegna eldgossins á Heimaey, er
hófst þann 23. janúar, voru 5 hraðfrystihús
með mjög mikil afköst sett út úr spilinu, er
það vissulega góður árangur. Eldgosið hafði
að vissu leyti lamandi áhrif á landsmenn
fyrstu vikumar eftir að gos hófst, en menn
voru fljótir að taka við sér og umskipuleggja
útgerð og fiskvinnslu á Suðvesturlandi með
tilliti til breyttra aðstæðna. Árangur varð
eftir því.
Eftir helztu afurðaflokkum var útflutning-
urinn sem hér segir:
Lestir Ml. kr. Lestir Ml. kr.
Fr. f. flök og 1973 1972
og blokkir 67.799 7.013,7 67.234 5.273,5
Heilfr. fiskur 7.190 296,8 7.807 284,9
Ilrogri, fryst 2.482 112,2 2.265 84,4
Fryst loðna 17.147 603,5 4.852 79,7
Fryst síld 171 1,9
Fr. fiskúrgangur 391 5,4 1,458 11,1
Fryst rækja 1.421 556,7 1.221 320,9
Frystur humar 665 382,1 1.329 605,9
Fr. hörpudiskur 505 177,4 739 248,3
og Alaskaufsa frá Japan og Suður-Kóreu. Af-
leiðingar þessa eru m. a. þær, að undanfarna
mánuði hefur gætt mikillar sölutregðu í
Bandaríkjunum og mikillar óvissu gætir um
verðlag. Þegar hafa orðið verðlækkanir á
nokkrum tegundum, og er óttast að í nánustu
framtíð verði enn frekari lækkanir.
Þá gera nýgerðir kjarasamningar frystihús-
unum erfitt fyrir. Verðlækkanir og innlendar
kostnaðarhækkanir stefna rekstrarafkomu
þeirra í mikla hættu og taprekstur fyrirsjáan-
legur framundan, verði ekkert að gert.
Framleiðslan.
Framleiðsla hraðfrystihúsa innan Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna og Sjávarafurða-
deildar SÍS árið 1973 var 88.914 smálestir.
Varð það 5.561 lest eða 6.67% meira en árið
áður. Við þennan samanburð ber þó þess að
gæta, að árið 1972 var hraðfryst loðna 4.207
lestir af heildarmagninu, en hins vegar
15.668 lestir árið 1973. Framleiðsla svo-
nefndra þorskfiskafurða var svipuð bæði ár-
in, eða 66.991 lest árið 1973 og 65.341 lest
árið 1972. í þessum tölum eru einnig hrað-
frystar skelfisktegundir.
Áætla má, að frysting hjá hraðfrystihúsum
utan vébanda S. H. og SÍS hafa verið 2—3000
lestir. Samkvæmt því hefur heildarfrysting
árið 1973 verið um 92.000 lestir.
Framleiðsla þorskflaka og þorskblokka hjá
S. H. og SÍS var 32.337 lestir, eða svo til ná-
kvæmlega jafnmikil og árið áður (1972:
32.815 lestir). Var það 36,4% heildarfram-
leiðslunnar. Síðustu árin hefur verið stöðnun
í framleiðslu þorskflaka og blokka og miðað
við árið 1970 um verulegan samdrátt að ræða.
Framleiðsla þessara tegunda hefur skipzt sem
hér segir s.l. 4 ár:
Ár Þorskflök Þorskblokk
% %
1973 44,9 55,1
1972 44,5 55,5
1971 46,9 53,1
1970 48,6 51,4
Framleiðsla ýsuflaka og blokka var 6489
lestir. Var það 909 lestum eða 16% meira en
árið 1972.
Samtals 93.771 9.149,7 86.905 6.908,7
Útflutningsmagn allra helztu afurðaflokka,
nema loðnu, dróst mjög saman á árinu 1973,
eins og framanskráð yfirlit sýnir. Hins vegar
varð um mikla verðmætisaukningu að ræða
vegna stöðugt hækkandi söluverðs á helztu
mörkuðum. Hefur verðlag á frystum fiski
aldrei verið hærra. Á það sérstaklega við um
bandaríska markaðinn.
Fryst fiskflök og fiskblokkir voru 76,7% af
Æ GIR — 84