Ægir

Árgangur

Ægir - 15.03.1974, Blaðsíða 9

Ægir - 15.03.1974, Blaðsíða 9
útflutningi frystra sjávarafurða miðið við verðmæti. Var 76,3% árið áður. Útflutningur þessara afurða var 63.799 lestir að verðmæti 7014 millj. kr. Helztu markaðslönd voru: Hlutdeild % miðað við Lestir Ml. kr. verðmæti Bandaríkin 51.161 6.137,2 87,5 Sovétríkin 7.516 461,5 ■6,6 Bretland 1.529 176,8 2,5 V.-Þýzkaland 1.982 138,1 2,0 Hlutdeild Bandaríkjamanna sem kaupenda frystra fiskflaka og blokka, sem og annarra frystra sjávarafurða, nema loðnu, er yfir- gnæfandi. Er nú svo komið, að tæplega 90% af þýðingarmestu afurðaflokkum fer inn á þennan eina markað. Síðustu árin hefur banda- ríski markaðurinn ótvírætt skilað beztu verði fyrir verðmætustu afurðategundimar. Olíukreppan og ókyrrðin í heimsviðskipt- unum með hrávörur o. fl. síðla hluta ársins 1973 og ennfremur breytt viðhorf í verðstöðv- tmarmálum í Bandaríkjunum hefur haft í för með sér sölutregðu á frystum sjávarafurðum. Birgðir hafa hlaðizt þar upp hjá helztu inn- flytjendum og er enn ekki séð fyrir afleiðing- ar þess. Óttast er, að verðlækkanir séu framundan °g einnig að stóraukið framboð Suður-Kóreu °g Japans á Alaskaufsa muni ýta undir þá þróun. S.H. og SÍS reka sem fyrr tvær fiskiðnaðar- verksmiðjur í austurfylkjum Bandaríkjanna. Áætla má, að heildarvelta þeirra 1973 hafi verið um $100 millj. og hafði þvi aukizt um 14% frá árinu áður. Afkoma Coldwater Seafood Corp. (SH) var góð, en Iceland Products Ltd. (SÍS) átti við ákveðna erfiðleika að stríða. Coldwater ann- ast auk þess sölur á hraðfrystum sjávaraf- urðum í Norður-Ameríku fyrir Föroya Fiska- sölan í Færeyjum, Findus A/S í Danmörku °g Nordafar í Grænlandi. Samstarfið við þessa aðila hefur gengið vel. Á árinu tók Cold- Water í notkun nýja viðbyggingu og stækkaði úæði vinnslusalur og frystigeymslur við það um helming. Samanlagður gólfflötur verk- smiðjunnar er nú um 18000 m2. Iceland Products Ltd., hafði stækkað verk- smiðju sína árið 1972, og við þá stækkun m. a. stóraukið frystigeymslurýmið. Báðar eru verksmiðjurnar hinar nýtízku- legustu og vel útbúnar nýjustu og beztu tækjum, sem völ er á. Útflutningur frystra fiskflaka og blokka til Bandaríkjanna hefur verið sem hér segir s.l. 5 ár. Ár Lestir 1969 47.006 1970 57.226 1971 49.445 1972 45.530 1973 51.161 Árið 1973 var merkilegt ár í sögu hraðfrysti- iðnaðarins á íslandi fyrir það, að segja má að á því ári hafi sú þróun verið staðfest, er hófst upp úr 1970 með frystingu og sölu loðnu til Japans. Árið 1973 voru flutt út 17.144 lestir að verðmæti kr. 603,5 millj. til Japans. Var það fjórfalt meira magn en árið áður og verðmæt- ið rúmlega sjöfalt meira. Mikil áherzla var lögð á að frysta sem mest af hrygnu, en með tilliti til þess, að þarna var raunverulega um fyrstu loðnuvertíðina að ræða, sem gaf hrað- frystihúsunum verulegt svigrúm til mikillar frystingar, var framleitt mikið magn í lægri verðflokkum. Frystingin tókst yfirleitt vel og líkaði ís- lenzka loðnan vel á japanska markaðnum. Af beggja hálfu, íslendinga og Japana, var því mikill áhugi fyrir að auka frystingu og sölu loðnu í Japan. Skipzt var á sendinefnd- um á árinu og mikil vinna lögð í að tryggja mun meira magn til sölu á árinu 1974. Leiddi þetta m. a. til þess, að S. H. og japanska fyrir- tækið Tokyo Maruichi Shoji (TMS) stofnuðu sameiginlegt fyrirtæki í Japan, sem skyldi annast sölu- og markaðsmál. Bundu menn miklar vonir við loðnuvertíðina 1974. Þegar þetta er ritað (í marz 1974) eru því miður allar horfur á, að loðnuvertíðinni sé lokið í ár. Það sem af er hefur tekizt að frysta upp í rúmlega helming þess magns, sem áætlað hafði verið að selja til Japans, eða aðeins 15.000 lestir í stað um 30.000 lestum. Hins vegar er framleiðslan svo til öll í verðmætari flokk- unum. Æ GIR — 85

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.