Ægir

Árgangur

Ægir - 15.03.1974, Blaðsíða 24

Ægir - 15.03.1974, Blaðsíða 24
Rafeindatæki. Helztu tæki í stýrishúsi eru: Ratsjár: 2 stk. Decca, RM 916 og RM 914. Miðunarstöð: Taiyo TD-A 130. Loran: Teledyne TDL-601, sjálfvirkur Loran C. Gyroáttaviti: Anschútz, gerð Standard IV. Sjálfstýring: Anschútz. Vegmælir: Bergen Nautik log. Dýptarmælir: Simrad EH 2E. Dýptarmælir: Simrad EK 50 A. Fisksjá: Elac LAZ 61. Netsjá: Simrad FB2 kapal- mælir, með Simrad EX sjálfrita. Talstöð: Simrad PB4/RW2, 100 W, D. S. B. Örbylgjustöð: 2 stk. Nera. Skipstjóri á Krossavík AK er Guðmundur Sveinsson og 1. vélstjóri Ármann Sigurðsson. Framkvæmdastjóri útgerðar- innar er Kristján Kristjáns- son. Því miður var ekki hægt að fá mynd af Krossvík AK, en til að bæta úr því birtist hér mynd af systurskipi Krossvík- ur, m/s. Gargia, smíðanúmer 17 hjá Sterkoder Mek. Verk- sted. Á TÆKJAMARKAÐIMUM Teledyne Loran C Frá fyrirtækinu Teledyne Systems Co. í Bandaríkjunum er kominn á markaðinn sjálf- virkur Loran C móttakari og nefnist hann (type) TDL-601. Loran-móttakari af þessari gerð var fyrir skömmu settur í skuttogarann Krossvík AK 300, sá fyrsti af þessari gerð, sem fer í íslenzkt fiskiskip. Einnig hefur Teledyne TDL- 601 loraninn verið í notkun og prófun í skipum Landhelg- isgæzlunnar. Stærð móttakarans er: breidd 432 mm, hæð 155 mm og dýpt 432 mm; tækið vegur 12,3 kg. Tækið er gert fyrir 110 og 220 V riðstraum (standardtæki). Með tækinu fylgir 2ja m stangarloftnet. Orkuþörf móttakarans er um 150 W. Langdrægni Loran C stöðv- anna er um 1000—1500 sjó- mílur undir venjulegum kring- umstæðum og tíðnin fyrir Loran C er 100 K Hz. Skv. upplýsingum framleiðanda er staðsetningarnákvæmni mót- takarans við fjarlægðarsvið allt að 500 sjómílum um 15— 60 m, en um 150 m við 1000 sml. fjarlægð. Á meðfylgjandi mynd er þessi nýi Loran C móttakari sýndur. Á myndskermi efst fyrir miðju koma fram tölu- raðir á víxl, sem gefa tvær ákveðnar línur á Loran C korti með einum sameiginlegum skurðpunkti, sem er staðsetn- ing skipsins. Með breyttri stöðu skips koma fram nýjar tölur á myndfleti, og gerist það algjörlega sjálfvirkt. Bak við lok á framhlið móttakar- ans eru ýmsir takkar og snerlar, sem notaðir eru m. a. við að leita að Loran-sendi- stöðvunum, þ. e. einni aðalstöð (master) og tveimur þjón- ustustöðvum (slaves). Þessi leit er framkvæmd eftir að kveikt hefur verið á tækinu, en þegar allar stöðvarnar eru komnar inn vinnur hann sjálf- virkt á þann hátt, sem hér að framan greinir. Þess má geta að tveir hlið- stæðir sjálfvirkir Loran C móttakarar (Simrad SL og At- las C 9012) voru kynntir í Ægi 1973 (6. og 13. tbl.). í 6. tbl. var einnig komið inn á þær Loran C sendistöðvar, sem þekja hafsvæðið umhverfis ís- land og verður það ekki endur- tekið hér. Umboð fyrir Teledyne hér á landi hefur Skiparadio h.f., Reykjavík. Skv. upplýsingum frá umboðinu er verð tækisins með öllu tilheyrandi um 45.000 n. kr. C.i.f., Reykjavík. Tækið er afgreitt frá A/S Kongs- berg Vapenfabrikk, sem hef- ur aðalumboð fyrir Norður- löndin. Miðað við gengisskrán- ingu í byrjun marz er verðið um 675.000 ísl. kr. ÆGIR — 100

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.