Ægir

Árgangur

Ægir - 15.03.1974, Blaðsíða 14

Ægir - 15.03.1974, Blaðsíða 14
Ef það tekst að samhæfa og samvirkja þró- unina í rannsóknum, fræðslumálum og ráð- gefandi þjónustu í heildarfiskimálastjórn- inni, þá hefði það ekki aðeins raunhæft nota- gildi, heldur gæti stuðlað að langtímastefnu- mótun í norskum sjávarútvegi og fiskiðn- aði. Að mestu leyti byggist árangurinn á því, hvernig til tekst með skipulagningu ráðgef- andi þjónustunnar og árangri einstakra liða hennar. Höfundurinn ræðir nú stuttlega orsak- irnar til þess, að menn vilja efla ráðgefandi þjónustu, rannsóknir og fræðslu, og eru þær flestar þær sömu og hérlendis. Norðmenn hafa vanrækt þetta allt, segir hann, en á þvi hljóti að verða bót, þar sem yfirvöldin séu þeirrar skoðunar, að fiskveiðar og fiskiðnaður sé landinu og þjóðinni nauðsynlegir atvinnu- vegir bæði til að viðhalda byggð á afskekkt- um stöðum á ströndinni, veita því fólki at- vinnu sem er þjálfað eingöngu til þessarar vinnu og vegna matvælaskorts í heiminum. Sjávarútvegur og fiskveiðar eru erfiðar at- vinnugreinar og því nauðsynlegt, að meðal- tekjur séu háar, ef þessar atvinnugreinar eiga að standast samkeppni um vinnuafl og orku og annað það, sem útvegurinn og og fiskiðn- aðurinn þarf til sín í vörum og þjónustu. Síð- an heldur höfundur áfram. Uppbygging ráðgefandi þjónustunnar. Það er ekki auðvelt verk að byggja upp þjónustu við sjávarútveginn og fiskiðnaðinn, sem geti verið ráðgefandi um stefnuna og leiðbeinandi um einstakar framkvæmdir. Þessu veldur allmikil sérstaða fiskveiðanna og fiskiðnaðarins og má nefna um hana nokkur raunhæf dæmi. Tækniþróun undanfarinna ára hefur verið svo mikil að hún hefur haft í för með sér mikla nauðsyn á margvíslegum um- breytingum í öllum rekstri. Vandamálin við slíkar breytingar hafa aukizt mikið nú síð- ustu árin. Árangurinn bæði í fiskveiðunum og fiskiðnaðinum er svo oft undir því kominn, að það takist greiðlega að breyta til. Þessi marg- víslega tækniþróun og þær breytingar, sem henni fylgja krefjast sífellt meiri faglegrar þekkingar og þjálfunar bæði að því er lýtur Æ GIR — 9Q að hinum almenna vinnukrafti og stjórn fyrir- tækjanna. Rekstrarformin og vinnutilhögunin verða flóknari og flóknari bæði til sjós og lands og jafnframt fjármagnsfrekari. Sam- keppni eykst bæði innan lands og á alþjóða- vettvangi. Eitt einkenni við fiskveiðar okkar og fiskiðnað er að hvorttveggja þarf að mið- ast við útflutning — bæði framleiðsla og sölu- kerfi. Allar breytingar á alþjóðlegum mörk- uðum fiskafurða hafa áhrif á þessar atvinnu- greinar. Fyrirtækin bæði í útgerðinni og fiskiðnað- inum eru tiltölulega lítil. Fiskimennirnir og þar af leiðandi fiskiðjuverin eru dreifð á marga smástaði. Á þessum stöðum er svo tíðum skortur á fagfólki og stjórnendum og einnig fjármagni og því allt verra viðureignar en hjá þeim atvinnugreinum, sem reknar eru í meira þéttbýli. Einmitt þessi staðreynd eykur þörf- ina á ráðgefandi heildarþjónustu, sem sniðin sé eftir staðbundnum þörfum. Ráðgefandi þjónusta í fiskveiðum og fisk- iðnaði mætti á margan hátt sníða eftir sams- konar þjónustu við landbúnaðinn, og þörfin er ekki síðri. Samt var ekki byrjað á að byggja upp slíka þjónustu við útveginn fyrr en 120 árum eftir að hún hófst í landbúnaðin- um. Sögulegt yfirlit. Ráðgefandi þjónusta við útveginn og fisk- vinnsluna var hafin 1886 með því að ráðnir voru nokkrir eftirlitsmenn með fiskveiðum á strandlengjunni frá Finnmörk til Austurfold- ar. Þessi eftirlitssvæði voru þá sex í byrjun. Sérstök heildarfiskimálastjórn var sett á laggimar um aldamótin 1900 og 1946 var svo norska fiskimálaráðuneytið stofnað. Þessar opinberu stofnanir hafa síðan smámsaman fært út verksvið sitt í margskonar stjórnun og einnig faglega og reynt að mæta með aukn- um starfskröftum sívaxandi þörf. En þó að hinar opinberu stofnanir hafi færzt í aukana, þá hefur mönnum hin síðari ár þótt á það skorta, að þær gætu annað því að veita alla þá þjónustu, sem þessar atvinnugreinar þyrftu með vegna þess, sem áður er sagt um hinar stórstígu tækniframfarir og breytingar í at- vinnugreinunum samfara auknum marg- breytileika þeirra.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.