Ægir - 01.08.1974, Blaðsíða 8
áœ.i Hliðarmynd.
2b. Langsnið.
Mynd 2. Tilraunageymirinn í Boulogne.
raunageymir þessi er gegnum-
streymisgeymir, þ. e. vatninu
er dælt um geyminn, en veið-
arfærið er í kyrrstöðu.
Á mynd 2 er teikning af
þessum geymi. Geymirinn,
sem byggður er úr stáli, er um
21,0 m á lengd, 2,0 m á breidd
og hæðin um 2,7 m. Geymir-
inn er tvískiptur eins og sjá
má á mynd 2 a og 2 b. í neðri
hluta geymisins, vinstra meg-
in, eru tvær skrúfur sem sjá
um vatnshringrásina. Skrúfur
þessar, sem vinna í lokuðum
göngum, „dæla“ vatninu upp
í efri hluta geymisins (vinstra
megin) en þar er vatns-
straumnum jafnað út með
plötuelementum til að fá jafnt
hraðasvið í aðalhluta (til-
raunahluta) geymisins. Frá
efri hluta geymisins (hægra
megin) streymir vatnið svo
eftir neðri hlutanum og að
soghlið skrúfanna.
Mynd 2 b sýnir lóðrétta
langskurðarmynd í gegnum
geyminn. Eins og sjá má á
myndinni er veiðarfæralíkan-
ið staðsett fyrir miðju í efri
hluta geymisins. Á botni þessa
hluta geymisins er 6 m langt
færiband, en efri hluti bands-
ins hreyfist í sömu stefnu og
vatnsstraumurinn til að líkja
eftir hafsbotninum.
Skrúfur þær sem sjá um
hringrás á vatninu eru 4ra
blaða og um 950 mm í þver-
mál. Þær eru knúnar einum
35 ha. jafnstraumsmótor (570
sn/mín) í gegnum niður-
færslugír (3:1) og keðjudrif-
Færiband er knúið af sérstök-
um mótor.
Eins og sjá má á mynd 2 a
og 2 c er pallur (yfirbyggður)
við miðhluta geymisins, þar
sem veiðarfæralíkan er stað-
sett. í gegnum glugga á hlið
geymisins er fylgst með líkan-
inu, en tilraunahluti geymis-
ins er lýstur upp. Stjórnun
geymisins fer fram frá palli
þessum, bæði gangsetning á
skrúfumótor og mótor fyrir
204 — ÆGIR