Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1974, Blaðsíða 13

Ægir - 01.10.1974, Blaðsíða 13
leið í Rósagarðinum og takist ekki að bjarga túrnum þar, er ekkert annað fyrir skipstjór- ann að gera en fremja Hara-kiri. Skozkir og enskir miðsævartogarar sækja mikið á þessa slóð milli íslands og Færeyja °g eru ýmist á sumrum og reyndar stundum allt árið í Rósagarðinum norðvestur af Fær- eyjum eða hér uppi við Suðausturlandið. Þar sem ICES byggir sínar rannsóknir ekki á hagsmunasjónarmiðum einstakra fiskveiði- þjóða, tekur ráðið ekki tillit til þeirra við skiptingu hafsvæðisins heldur fylgir haffræði- iegri og líffræðilegri skiptingu og miðar jafn- framt við afla allra þjóða af tilteknu svæði. Illskiljanlegri er frá leikmannssjónarmiði af hverju aflatölur af Austur-Grænlandsmiðum eru ekki teknar með aflatölum af íslandsmið- Um, því að milli íslandsmiða og Grænlands- miða víxlast einmitt sókn margra þjóða mjög mikið. Stóru úthafstogararnir, sem veiða vest- ur og norður af íslandi, eru oft jöfnum höndum í sama túrnum á hvoru tveggja miðunum. Sérsvæði XIV, Austur-Grænlandsmið vestur að Hvarfi og norður að Islandsmiðum. Heildaraflinn á þessum miðum hefur sveifl- ast frá 40-80 þús. lesta og er þar mest um þorsk að ræða. 1962 var aflinn 46 þús. lestir, 81 þús. og 80 þús. árin 1964 og ’66, en var 49 þús. lestir 1972. Austur-Grænlandsaflinn er ekki sundurliðaður eftir tegundum í töfl- Unni, en mest er hann þorskur og karfi, en þó einnig talsvert af ýmsum fleiri tegundum, svo sem grálúðu. Og eins og áður segir, bland- ast Austur-Grænlandsaflinn óhjákvæmilega talsvert íslandsaflanum. Sérsvæði XII Þetta svæði er hafið vestur af 1000 metra grunnkantinum vestur af Bretlandseyjum og nær vestur að 42° v. 1., suður að 48° n. br. og norður að fslands- og Austur-Grænlandsmið- um. Svæðið er því geysistórt en lítið nýtt ennþá. Reykjaneshryggurinn gengur þó suð- ur í þetta svæði og þangað sækja stórir tog- arar nokkurn karfaafla, eins hafa fundist í dýpinu vestur af Bretlandseyjum nokkrar ætar og sennilega veiðanlegar botnfiskstegundir, þó að enn sé óráðið hvort sú sókn svari kostn- aði (sbr. Ægi 3. tbl. ’74). Kolmunninn hrygnir °g heldur sig mikið í austurkanti þessa svæðis. AÐALSVÆÐI 2. Þetta svæði nær yfir miðin vestur af ír- landi og Bretlandseyjum, vestur að 18° v. 1. eða 1000 metra kantinum og suður að 48° n. br., það er suður á móts við Bretagne- skagann, síðan nær það yfir Norðursjóinn, Skagerak og Kattegat og miðin við Suður- Noreg norður að 64° n. br. Heildaraflinn á þessu aðalsvæði hefur ver- ið gífurlega mikill, eða hátt í 4 milljónir lesta árlega árum saman, og einstaka ár losað vel 4 milljónir lesta. Þegar á það er litið, hversu gífurleg sóknin hefur verið á þessu svæði öllu, en þó einkum sérsvæði IV, sem síðar verður fjallað um, áratugum og reynd- ar öldum saman, þá vekur það furðu hvað aflinn hefur haldist í heild. Heildaraflinn á öllu aðalsvæði 2 var 2 millj. 20 þús. lestir 1962, fór síðan árlega vaxandi og náði hámarki 1968, og var það ár 4 millj. 80 þús. lestir, en 1972 var hann 3 millj. 887 þús. lestir. Sandsíli hefur veiðst í miklu magni á svæð- inu undangenginn áratug. Heildarveiðin var 140 þús. lestir 1962, fór síðan niokkuð jafnt vaxandi og var um og yfir 200 þús. lestir á árunum 1966-70 en 1971 varð aflaaukningin gífurleg og aflinn fór yfir 400 þús. lestir (404 þús.), en árið eftir, 1972, var hann 366 þús. lestir. Flatfisksaflinn (aðallega skarkoli) hefur verið nokkuð jafn allan umræddan tíma eða frá 183 þús. lestum (1962) upp í 224 þús. lestir síðasta ár skýrslunnar (1972) og er það hið mesta sem hann hefur orðið. Síldaraflinn á þessu svæði var 866 þús. 1962 og jókst síðan fram að 1965, að hann náði hámarki, 1 millj. 559 þús. lestum, en úr því fór aflinn jafnt og þétt heldur rýrnandi á svæðinu sem heild. Þó að hann yxi mikið vestan Bretlandseyja nægði það ekki til að vega upp á móti rýrnuninni austan þeirra (Norðursjó), og 1972 var heildarsíldaraflinn af svæðinu öllu 1 millj. 4 þús. lestir eða 554 þús. lestum minni en hann varð mestur um miðjan áratuginn á undan. Makrílaflinn, sem var ekki nema rúm 100 þús. lestir 1962 snar- jókst á árunum 1965-67, en það ár náði hann hámarki, nær milljón lestum, en hefur síðan farið álíka ört minnkandi og var 1972 ekki nema 322 þús. lestir. Þorskaflinn hefur þre- faldast á svæðinu í heild. Hann var 128 þús. ÆGIR — 287

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.