Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1975, Blaðsíða 7

Ægir - 15.02.1975, Blaðsíða 7
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS 68. ÁRG. 3. TBL. 15. FEBRÚAR 1975 Stórkostleg eignaskipting EFIMISYFIRUT: Stórkostleg eignaskipting 41 Hans G. Andersen: þrjár ræður fluttar í 2. nefndinni á Hafréttarráð- stefnunni: Landgrunnið, Efnahagslögsagan og- Hugtakið forréttindi 42 Siúvarútvegurinn 1974: greinaflokkur: Valdimar Indriðason: Htgerð stærri togaranna 1974 46 Etgerð og aflabrögð 49 Fiskispjall: Tilraunatankar 53 Sporöskjulagaðir toghlerar 55 Lög 0g reglugerðir: Reglugerð um sérstakt 'ínu- og netaveiðisvæði úti af Snæfellsnesi 56 Reglugerð um skiptingu veiðisvæða eftir veiðar- færum 56 Fiskverð: ' erð á loðnu til bræðslu 58 Verð á hörpudiski 58 ' erð á fiskbeinum og slógi 58 Ný fiskiskip: Runólfur SH 135 59 ÚTGEFANDI: fiskifélag Islands höfn. INGÓLFSSTRÆTI S(M1 10500 RITSTJÓRN: MÁR ELlSSON (ábm.) JÓNAS BLÖNDAL AUGLÝSINGAR: GUÐMUNDUR INGIMARSSON UMBROT: GfSLI ÓLAFSSON PRENTUN: ÍSAFOLD ÁSKRIFTARVERÐ 1000 KR Argangurinn KEMUR ÚT hálfsmánaðarlega Þess var varla aS vænta að vandamál þau, sem við eigum við að stríða leystust með skjótum hætti. Hin miklu og víðtæku skoðanaskipti, sem í Caracas ráðstefnu áttu sér stað með þjóðum heims voru óhjákvæmilegur undanfari þess sem síðar verður von- andi. Hér er að vissu leyti um nýskipan eins aðalþáttar heimsmálanna að ræða og önnur og minni mál, sem taka til færri þjóða hafa verið lengi í deiglunni áður en-lausn feng- izt. Það er ekkert smáræðis- mál að skipta auðæfum hafs- ins, sem þekur fjóra fimmtu hluta jarðar. Úr höfunum veiðast 60—70 mUljónir lesta fisks árlega og mikil auðæfi eru fólgin í og undir hafsbotninum. Viðskipti þjóða byggjast á siglingum um höfin og loks er að nefna hernaðarlegt mikilvægi marg- ra hafsvæða. Fiskveiðirétt- indi strandríkja, sem mest tekur til okkar, eru aðeins eitt atriði þessara miklu eignauppskipta milli þjóða heims. Og í þeim málaflokki einum stangast á mörg sjón- armið og ólík. Mörg fiskveiði- svæði eru sameign margra þjóða og nýtt af enn fleiri þjóðum. Eyðisker geta nú orðið mikið deiluefni i sam- bandi við ákvörðun fiskveiði- lögsögu og megum við í því efni minnast Rockall og Jan- Mayen. Landlukt ríki, en þau eru mörg, heimta einhvern hlut í þessari miklu fæðu- auðlind heimsins. Fiskveiði- þjóðir sem víða hafa sótt til fanga og eiga stóra fiskveiði- flota sætta sig ógjarnan við sjónarmið strandríkjanna. Þannig eru ágreiningsatriðin í þessum eina málaflokki mörg og mikil. I þeim ræðum Hans G. Andersens, sem birt- ar hafa verið nú í Ægi, er að finna þá línu eða stefnu, sem við munum fylgja á næstu hafréttarráðstefnu, sem verð- ur í Genf 17. marz, n. k. Full- trúum er að því mikill styrkur að mæta þar með fastmótaða stefnu og ekki síður er þeim styrkur að því að vita, að þjóðin er einhuga um 200 sjóm. fiskveiðilögsögu.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.