Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1975, Blaðsíða 24

Ægir - 15.02.1975, Blaðsíða 24
FISKVERÐ Verð á loðnu til bræðslu Yfimefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á loðnu til bræðslu eftirgreind tímabil á loðnu- vertíð 1975: Frá 17. jan. til 8. febr., hvert kg........ 2.80 Frá 9. febr. til 15. febr., hvert kg .... 2.05 Frá 16. febr. til 22. febr., hvert kg .... 1.90 Frá 23. febr. til 1. mars, hvert kg .... 1.60 Frá 2. mars til 8. mars, hvert kg.......... 1.35 Frá 9. mars til 15. mars, hvert kg .... 1.25 Eftir 15. mars er ekki verð í gildi. Auk framangreinds verðs greiði kaupendur kr. 0.15 fyrir hvert kg frá 17. jan. til 15. febr., en kr. 0.10 frá 16. febr. til 8. mars í loðnu- flutningasjóð. Eftir þann tíma er ekki greitt framlag í loðnuflutningasjóð. Verðið er miðað við loðnuna komna á flutn- ingstæki við hlið veiðiskips eða löndunartæki i verksmiðju. Lágmarksverð hvers tímabils gildir um það loðnumagn, sem komið er í skipi að löndunar- bryggju fyrir kl. 24.00 síðasta dag hvers verð- tímabils. Fulltrúum í Verðlagsráði er heimilt að segja verðinu upp frá og með 9. febrúar og hvenær sem er síðan með viku fyrirvara. Reykjavík, 20. janúar 1975. Verðlagsráð sjávarútvegsins. Verð á liörpudiski Verðlagsráð sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á hörpudiski frá 1. janúar til 31. maí 1975: Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi, 7 cm á hæð og yfir, hvert kg..... 14.00 Verðið er miðað við, að seljendur skili hörpudiski á flutningstaeki við hlið veiðiskips, og skal hörpudiskurinn veginn á bílvog af lög- 58 — ÆGIR giltum vigtarmanni á vinnslustað log þess gætt, að sjór fylgi ekki með. Fulltrúum í Verðlagsráði er heimilt að segja verðinu upp með viku fyrirvara. Verðið miðast við gæða- og stærðarmat Fiskmats ríkisins og fari gæða- og stærðar- flokkun fram á vinnslustað. Reykjavík, 29. janúar 1975. Verðlagsráð sjávarútvegsins. Verð á fiskbeinum og slógi Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins hefur ákveðið eftirfarandi lágmarksverð á fiskbeinum, fiskslógi og heilum fiski til mjöl- vinnslu frá 1. janúar til 31. maí 1975: a) Þegar selt er frá fiskvinnslustöðvum til fiskmjölsverksmiðja: Fiskbein og heill fiskur, annar en síld, loðna, karfi og steinbítur, hvert kg ........................... 1.10 Karfabein og heill karfi, hvert kg. . 2.80 Steinbítsbein og heill steinbítur, hvert kg............................ 0.72 Fiskslóg, hvert kg ................. 0.50 b) Þegar heill fiskur er seldur beint frá fiskiskipum til fiskmjölsverk- smiðja: Fiskur, annar en síld, loðna, karfi og steinbítur, hvert kg ............ 0.96 Karfi, hvert kg.......................... 2.43 Steinbítur, hvert kg .................... 0.63 Verðið er miðað við, að seljendur skili fram- angreindu hráefni í verksmiðjuþró. Karfabeinum skal haldið aðskildum. Fulltrúum í Verðlagsráði er heimilt að segja verðinu upp frá og með 15. marz og síð- an með viku fyrirvara. Reykjavík, 30. janúar 1975. Verðlagsráð sjávarútvegsins. J

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.