Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1975, Blaðsíða 16

Ægir - 15.02.1975, Blaðsíða 16
1.004 lestum úr 9 veiðiferðum. Gæftir voru stirðar. Vog'ir. Þar stunduðu 2 (0) bátar veiðar með net og öfluðu 10 lestir. Gæftir voru slæmar. Hafnarfjörður. Þar stunduðu 2 (3) bátar veiðar og öfluðu 13 (58) lestir í 3 (15) veiði- ferðum. Auk þessa lönduðu 5 (2) togarar 1.439 (255) lestum úr 10 (3) veiðiferðum. Gæftir voru slæmar. Reykjavík. Þar stunduðu 10 (4) bátar veið- ar, 2 með línu, 2 með net og 6 með botnvörpu og öfluðu alis 514 (136) lestir í 37 (9) lönd- unum. Auk þess lönduðu 9 (2) togarar 2.559 (303) lestum úr 13 (2) veiðiferðum. Gæftir voru stirðar. Akranes. Þar stunduðu 8 (10) bátar veiðar með línu og öfluðu 446 (384) lestir í 97 (82) veiðiferðum. Auk þess lönduðu 3 (1) togarar 785 (285) lestum úr 5 (4) veiðiferð- um. Gæftir voru stirðar. Rif. Þar stunduðu 16 (11) bátar veiðar, 7 með línu og 9 með net og öfluðu alls 348 (387) lestir í 87 (114) veiðiferðum. Gæftir voru slæmar. Ólafsvík. Þar stunduðu 15 (17) bátar veið- ar, 9 með línu og 6 með net, aflinn alls varð 522 (429) lestir í 149 (115) sjóferðum. Gæft- ir voru stirðar. Grundarfjörður. Þar stunduðu 10 bátar (5) veiðar 1 með línu, 4 með net og 5 með botn- vörpu og öfluðu alls 167 (139) lestir í 60 (52) veiðiferðum. Auk þessa landaði togarinn Runólfur 54 lestum úr sinni fyrstu veiðiferð. Gæftir voru slæmar. Stykkishólmur. Þar stunduðu 4 (8) bátar veiðar 3 með skelplóg og öfluðu 30 (195) lest- ir af hörpudiski í 13 (54) löndunum og einn með línu og aflaði 48 (23) lestir í 12 sjóferð- um. Gæftir voru slæmar. VESTniÐIN G AF JÓRÐUN GUR í janúar 1975 Fádæma ógæftir voru nálega allan janúar- mánuð og sjósókn erfið. Yfirleitt fékkst þó góður afli, þegar gaf til róðra. Afli var þó tcluvert misjafn hjá línubátunum, jafnbestur hjá bátunum frá Djúpi og nyrðri Vestfjörð- unum. Togbátarnir fengu einnig góðan afla, þrátt fyrir rysjótt tíðarfar og mikil frátök. Bestur var aflinn fyrstu daga ársins. Heildaraflinn í janúar var 5.010 lestir, en var 4.369 lestir á sama tíma í fyrra. Af 33 bátum, sem stunduðu bolfiskveiðar í janúar, réru 25 með línu, 7 með botnvörpu og 1 með net, en í fyrra réru 30 bátar með línu, 8 með botnvörpu og 1 með net. Línubátarnir stund- uðu allir dagróðra, og var heildarafli þeirra 2.581 lest í 406 róðrum eða 6,36 lestir að meðaltali í róðri. 1 fyrra var afli línubátanna í janúar 2.691 lest í 466 róðrum eða 5.77 lest- ir að meðaltali í róðri. Aflahæsti línubáturinn í mánuðinum var Sólrún frá Bolungavík með 179,5 lestir í 21 róðri, en f fyrra var Guðmundur Péturs frá Bolungavík aflahæstur með 173.6 lestir í 20 róðrum. Af togbátunum var Bessi frá Súða- vík aflahæstur með 419,6 lestir. Bessi var einnig aflahæsti togbáturinn í fyrra með 351,6 lestir. FÆRIBANDAREIMAR Fyrir fiskvinnslustöðvar, skuttogara, rækjustöðvar, fiskimjölsverksmiðjur RÆKJUFRAMLEIÐ- ENDUR ATHUGIÐ: Ljósgrænu reimarn- ar á skoðunar- böndin hafa sannað gildi sitt. MIKIÐ ORVAL TEGUNDA, LITA OG STÆRÐA. Einnig allar tegundir færi- bandareima úr riðfríu stáli og galvaniseruðu stáli. SPYRJIÐ ÞÁ, SEM REYNSLUNA HAFA. / r SLÉTTAR fyrir LÁRÉTTA FÆRSLU RIFLAÐAR fyrir HALLANDI FÆRSLU BRATTA FÆRSLU ARNIOLAFSSON &CO.SIMI 40088 50 — ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.