Ægir

Árgangur

Ægir - 15.02.1975, Blaðsíða 26

Ægir - 15.02.1975, Blaðsíða 26
slíkum geymum. ÍLestin er einangruð með polyurethan og klædd með stálplötum. Kæli- kerfi er miðað við að halda 0°C hitastigi í lest. Kæli- þjappa er frá Bitzer, kælimið- ill Freon 22, og er lest kæld með kælileiðslum. Ibúðir eru samtals fyrir 18 menn, fimm 2ja manna klef- ar undir neðra þilfari, tveir 2ja manna og einn eins manns klefi á neðra þilfari, tveir eins manns klefar og íbúð skipstjóra í þilfarshúsi á efra þilfari. — Á neðra þilfari er einnig matsalur, eldhús, kæld matvælageymsla með frystiskáp, snyrting með salernum og sturtuklefa. Skip- stjóri hefur eigið salerni og bað, en í þilfarshúsi er einnig snyrtiaðstaða. Helztu tæki í stýrishúsi eru: Ratsjár: Tvær Furuno FRD 50, 100 sml. langdrægni. Miðunarstöð: Taiyo TD—A 130. Loran: Simrad LC, sjálfvirkur Loran C. Gyroáttaviti: Anschutz, gerð Standard VI. Sjálfstýring: Anschutz. Vegmælir: Bergen Nautik, gerð F.D.U. Dýptarmælir: Simrad EQ 50. Dýptarmælir: Simrad EQ 38 með MA botnstækkun. Fisksjá: Simrad CI. Asdik: Simrad SK 3. Netsjá: Simrad FB 2 kapalmælir með FI botnþreifara og EQ 50 sjálfrita. Talstöð: Sailor T 122/R 105, 400 W S. S. B. Örbylgjustöð: Simrad VHFon, gerð PC 3. Veðurkortamóttakari: Morrow, gerð TM 14. I afturhluta stýrishúss eru stjómtæki fyrir togvindu, grandaravindur svo og flot- vörpuvindu. Togmælar eru innbyggðir í togvinduna, en aflestur í brú. Fyrir togvindu er að auki sjálfritandi skrif- ari, sem sýnir frávik frá jöfnu átaki á togvíra. Skipstjóri á Runólfi SH er Axel Schiöth og 1. vélstjóri Búi Jóhannsson. Fram- kvæmdastjóri útgerðarinnar er Guðmundur Runólfsson. Ægir óskar eigendum og á- höfn til hamingju með skipið. Leiðrétting. Villa slæddist inn í lýsingu á vélabúnaði skuttogarans Stálvík SI (16. tbl. Ægis ’73), systurskipi Runólfs SH. I þeirri lýsingu stendur að þvermál skrúfu sé 2300 mm, en hið rétta er 2150 mm, eða sama skrúfustærð og fyrir Runólf SH. Saltfisk verkendur Viö vekjum athygli á aö vió getum boöiö saltfiskverkendum m.a. þurrkunar- samstæöur, fiskþvottavélar, pökkunarvélar, salt og striga. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Sjávarafurðadeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 28200 60 — Æ G I R

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.