Ægir - 15.02.1975, Qupperneq 12
Sjávarútvegurinn 1974
Nohkrir iorustumcnn í sjávaríitvcg i og iiskiðnaái geta í þessu og ntestu
blöðum stutt giirlit gtir tírið scm lcið. og rtcða ástantl og hortur
Valdimar Indriðason:
fTtgerlS stærri togaraiina 1974
Nú má segja, að
nýsköpunartogar-
arnir hafi sungið sitt
síðasta vers. Árið
1973 lauk útgerð
síðasta diesel-togar-
ans frá nýsköpunar-
árunum og á árinu
1974 var hætt útgerð
5 gufuskipa þ. á m.
hins nafnfræga skips
Ingólfs Arnarsonar,
sem bar nafnið Hjör-
leifur rúml. eitt ár.
Mun hann hafa verið einhver mesta happa-
fleyta, sem Islendingar hafa eignast. Nú er
aðeins gerður út einn gufutogari, Harðbak-
ur á Akureyri, enda er hann úr síðari ný-
sköpuninni, kom til landsins 1950. AIls voru
nýsköpunartogararnir 43 talsins 38 gufuskip
og 5 dieselskip. Er ómældur sá auður, sem
þessi floti glæsilegra skipa hefur skilað þjóð-
arbúinu.
Eigendur allra þessara togara og annarra
togara, sem keyptir voru til 1971, voru í ein-
um félagsskap, F. í. B. Seinustu árin fyrir
skuttogaratímann voru aðeins reknir 22
togarar, sem tók mjög að fækka 1972 og 1973.
— Einnig eru reknir 4 dieseltogarar, sem
keyptir voru til landsins á árunum 1957 til
1960. Voru að vísu alls keyptir 7 stórir diesel-
togarar á þessu tímabili, en einn var seldur
úr landi, einum breytt í hringnótarskip og
einum, b/v Narfa, var á árinu 1974 breytt í
46 — Æ GI R
skuttogara. Virðist sú framkvæmd, sem er
nýjung, ætla að gefa góða raun.
í staðinn fyrir þann flota, sem farinn er
forgörðum, hafa verið keyptir til landsins 12
nýir, stórir skuttogarar og sá 13. er væntan-
legur til landsins snemma árs 1975, b/v Harð-
bakur. Þá hafa og verið keyptir 4 nýlegir,
stórir skuttogarar, ef b/v Sólbakur á Akur-
eyri er talinn með, en það skip er í F. í. B. Þá
er að telja b/v Narfa, sem er kominn í hóp
skuttogara, svo að í þessum flokki eru að
verða 19 togarar. Við bætast svo fimm síðu-
togarar, sem fyrr er getið, svo að hinir stærri
togarar eru þá alls 24 talsins.
Sú umbylting hefur svo orðið að auki, að á
skömmum tíma hafa verið keyptir til landsins
36 togarar af minni gerð, þ. e. undir 500 brt.,
flestir nýir, aðrir nýlegir, og enn munu vera
væntanlegir a. m. k. 4 togarar af þessari
gerð. Þegar þeir koma, kemst togaraflotinn í
a. m. k. 63 skip og er það mesta togareign
landsmanna frá upphafi ekki aðeins að fjölda
til heldur og stærð. — Hinir minni togarar
eða eigendur þeirra eru í útvegsmannafélög-
um víðsvegar um landið. — Verður sú hlið
mála ekki rædd frekar hér en vísað um þau
í áramótagrein mína í Ægi, 1. tbl. 1974.
Afkoma stærri togaranna var mjög slæm á
árinu 1974, og á það bæði við um síðutogar-
ana og skuttogarana. Erfitt hefir verið um
afkomuáætlun fyrir síðutogara bæði vegna
þess að þeir voru smám saman að heltast úr
lestinni og þeir hafa notið annarrar og sér-
stakrar fyrirgreiðslu í framlögum til styrkt-
ar rekstri en skuttogararnir. Enn er ekki að
fullu Ijóst, hvernig þeirri fyrirgreiðslu lykt-
ar, en þó bendir margt til þess, að afkoma
þeirra hafi verið nokkru skárri en skuttog-
J