Ægir - 15.12.1975, Side 8
Már Elísson:
Skýrsla fiskimálastjóra
til 34. Fiskiþings
Skýrsla sú, er ég flyt Fiskiþingi að þessu
sinni verður að því leyti með nokkrum öðrum
hætti en undangengin ár, að ég mun ekki
ræða framgang mála, er samþykkt voru á
síðasta Fiskiþingi.
í samræmi við óskir þingsins hefi ég aftur
á móti samið sérstaka skýrslu þar um, sem
lögð hefur verið fyrir þingið til athugunar.
Þá liggja fyrir þinginu skýrslur starfsmanna
félagsins um ýmsa þætti starfseminnar, svo
og endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir
árið 1974.
Segja má, að starfsemi hinna ýmsu deilda
félagsins frá síðasta Fiskiþingi hafi verið
með svipuðu sniði og starfsárið þar á und-
an. Þetta segir samt í sjálfu sér lítið án
nánari útlistunar.
Eins og ég gat um í skýrslu minni til 33.
Fiskiþings, hafði þá nýlega verið tekinn upp
nýr þáttur í starfsemi félagsins, þ. e. nám-
skeið í sjóvinnu. Samkvæmt lögum um Sjó-
vinnuskóla íslands, sem samþykkt voru á
síðasta Alþingi, mun þessi fræðsla verða fast-
ur þáttur í starfsemi Fiskifélagsins framveg-
is. Nú er ekki búið að ganga frá reglugerð
um skólann, eða á annan hátt að sníða hon-
um stakk. Við verðum þess vegna að ganga
út frá því sem gefnu, að námskeiðin haldi um
sinn áfram á svipaðan hátt og undanfarið.
Þá má og geta þess, að ekki er gert ráð
fyrir fjárveitingu til þessara mála í frum-
varpi til fjárlaga fyrir árið 1976. Athygli
fjárveitinganefndar Alþingis hefur verið
vakin á þessu. Lofaði nefndin að taka það til
athugunar við aðra umræðu frumvarpsins.
Skýrsla um þessa fræðslustarfsemi á síð-
asta starfsári verður lögð fyrir þingið. Að
öðru leyti vísa ég til skýrslu minnar um fram-
gang mála frá síðasta Fiskiþingi.
Útgáfustörf félagsins hafa verið með sama
hætti og áður. Sjómannaalmanakið kemur út
með eðlilegum hætti svo og tímaritið Ægir.
Á s.l. hausti komu út á vegum félagsins tveir
bæklingar. Annar um sjómannaskólana, nám
sjómanna og réttindi. Hinn um nokkur undir-
stöðuatriði næringarefnafræði. 1 undirbún-
ingi eru nú tvær bækur: Stutt kennslubók í
siglingafræði til notkunar við sjóvinnunám;
hin um fiskeldi í sjó.
Þá mun vikulegur útvarpsþáttur, svonefnt
fiskispjall, halda áfram á þessum vetri með
svipuðu sniði og s.l. vetur.
Allmiklir erfiðleikar blasa við skýrslu- og
hagdeildum félagsins, ef núverandi álag helzt
í sambandi við upplýsingagjöf, útreikninga og
skýrslusöfnun. Kom það raunar í ljós á s. 1.
hausti, en þó einkum á þessu ári. Þrátt fyrir
mikla auka- og helgidagavinnu starfsmanna,
hefur ekki reynzt unnt að flýta skýrsluút-
gáfu eins og stefnt var að, einkum vegna
mjög aukinna þarfa á nýjum skýrslum og
öðrum upplýsingum svo og afgreiðslu starfa,
sem á félagið hafa verið lögð, aðallega í sam-
bandi við viðleitni stjórnvalda til að leysa
efnahagsvandann. Má nefna gengisbreytingar,
greiðslur úr svonefndum gengishagnaðarsjóði
o. fl. Ekki hafa bætt úr skák langvarandi
veikindaforföll annars starfsmanns Reikn-
ingastofu sjávarútvegsins.
Stefnan í þessum málum er óbreytt. Afla-,
verðmætis- og sóknarskýrslur fyrir næsta ár
á undan verði tilbúnar snemma vors. Sams-
konar skýrslur fyrir vetrarvertíð verði til-
búnar síðla sumars. Bráðabirgðaskýrslur
Reikningastofu ásamt frumreikningum verði
tilbúnar að hausti. Ef núverandi vinnuálag
helzt, verður þessum markmiðum vart náð,
að öðru óbreyttu.
390 — ÆGIR