Ægir - 15.12.1975, Side 23
t
Minu ingaror ð:
Jóhannes Jónsson
útgerðarmaður frá Gaukstöðuin í Garði
Hinn 26. júlí lézt í Reykjavík Jóhannes
Jónsson útgerðarmaður frá Gaukstöðum í
Garði, 87 ára að aldri. Með Jóhannesi á
Gaukstöðum er horfinn héðan einn af merk-
ustu og farsælustu útgerðarmönnum þessa
lands.
Jóhannes Jónsson var fæddur á Gauk-
stöðum í Garði 4. apríl 1888. Foreldrar hans
voru Jón Finnsson, útvegsbóndi þar og kona
hans Guðrún Hannesdóttir bónda í Prests-
húsum í Mýrdal Hannessonar.
Ungur að árum hóf Jóhannes sjósókn frá
heimabyggð sinni, fyrst á opnum bátum og
síðan á vélbátum. Árið 1918 hóf hann útgerð
ásamt mági sínum, Halldóri Þorsteinssyni,
útvegsbónda í Vörum í Garði. Hóf Jóhannes
þá jafnframt fiskverkun á Gaukstöðum, sem
var fyrsti vísirinn að hinni þekktu fisk- og
síldarvinnslustöð þar.
Haustið 1923 stofnuðu þeir Jóhannes Jóns-
son á Gaukstöðum, uppeldisbróðir hans,
Sveinn Guðmundsson og Þorgeir Magnússon,
útvegsbóndi frá Lambastöðum, með sér út-
gerðarfélag og festu kaup á 16 lesta vélbáti,
er hlaut nafnið Jón Finnsson. Var það fyrsti
vélbáturinn með því þekkta nafni. Jóhannes,
sem þá skömmu áður hafði lokið fiskimanna-
prófi í Reykjavík, tók að sér skipstjórnina,
auk þess sem hann annaðist stjóm fiskverk-
unarinnar og búskaparins á Gaukstöðum, en
árið 1912 tók hann við búsforráðum af föður
sínum. Árið 1930 keypti Jóhannes hlut félaga
sinna í útgerðinni. Var hann skipstjóri á Jóni
Finnssyni, hinum fyrsta, til ársins 1937 en þá
tók elzti sonurinn á Gaukstöðum, Þorsteinn
Jóhannesson, við skipstjórninni. Helgaði Jó-
hannes eftir það fiskvinnslustöðinni og bú-
skapnum á Gaukstöðum krafta sína, auk
þess sem hann stjórnaði áfram útgerðinni
ásamt elztu sonum sínum, Þorsteini, sem nú
er framkvæmdastj óri fyrir fiskvinnslustöð-
inni og Gísla, sem er skipstjóri á nýjasta
bátnum með Jóns Finnssonar nafninu.
Jóhannes kvæntist 21. desember 1912 Helgu
Þorsteinsdóttur, útvegsbónda á Meiðastöðum
Gíslasonar, mikilli dugnaðar- og drengskap-
arkonu. Var hjónaband þeirra hið farsælasta.
Helga lézt 1968. Varð þá mikil breyting á
högum Jóhannesar, þótt hann bæri harm sinn
jafnan í hljóði.
Þau Jóhannes og Helga eignuðust 14 börn
og eru 11 þeirra á lífi.
Jóhannes Jónson á Gaukstöðum var far-
sæll skipstjóri og góður aflamaður. Þrátt fyr-
ir miklar annir, gaf hann sér tíma til af starfa
að ýmsum félagsmálum í byggðarlagi sínu.
Hann var einn af stofnendum og forystu-
mönnum útgerðarfélags Gerðahrepps og
starfaði mikið að slysavarnarmálum. Var
hann um langt skeið formaður Björgunar-
deildar Slysavarnarfélagsins í Garði. Átti Jó-
hannes stóran þátt í björgun fjölda manns-
lífa, bæði sem skipstjóri og formaður björg-
unardeildarinnar.
Jóhannes var mikill tónlistarunnandi og
söngmaður góður. Hann var einn af stofnend-
um fyrsta karlakórs á Suðurnesjum. Var það
karlakórinn „Víkingar“ í Garði. í góðtempl-
arareglunni starfaði Jóhannes í áratugi, enda
var hann alla ævi bindindismaður.
Jóhannes var allmikill bókamaður og bar
einkenni hins sannmenntaða manns, þótt
skólagangan væri stutt eins og algengast var
á uppvaxtarárum hans.
Er síldarsöltun hófst fyrir alvöru á Suður-
og Vesturlandi árið 1950, stækkuðu Jóhannes
Jónsson og synir hans fiskverkunarstöðina á
Gaukstöðum og hófu söltun síldar í allstór-
um stíl. Átti ég þá því láni að fagna, að kynn-
Framhald á bls. 413.
ÆGIR — 405