Ægir

Årgang

Ægir - 15.12.1975, Side 26

Ægir - 15.12.1975, Side 26
norðar en smáhvelin og þá mest norður undir 80. breiddarbaug. Þau hurfu af miðunum í byrjun fengitímans og enginn vissi hvert þau fóru. Veiðin var jöfnust um 78. gráðuna og þá blönduð bæði stórum og smáum hvölum. Það fór að minnka hvalgengdin í júlímánuði. Þó að allstórir bæir risu upp á Svalbarða með íbúðarhúsum, bræðslustöðvum, verk- stæðum, verzlunarhúsum og veitingastofum, þá héldust menn illa við þarna að vetrarlagi, en það var reynt að láta menn hafa þarna vetursetu. Því olli skyrbjúgurinn, sem herj- aði á þessa norðurfara vegna einhæfrar fæðu. Á þessum tíma var tekin upp sú verkaskipt- ing, sem enn tíðkast, að sumir stunduðu veiðarnar, aðrir bræddu, sumir hreinsuðu kjötið af beinunum og enn aðrir fluttu til tunnur og önnuðust aðra flutninga á stöðinni. Þess vegna hef ég tekið upp þessa lýsingu á veiðunum við Svalbarða að hún á að nokkru leyti við íslandshvalveiðarnar, sem Baskarnir höfðu hafið hér á 16. öld, nema í smærri stíl. Leikurinn berst á íslandsmið Um 1611 fóru Hollendingar, sem höfðu fundið Jan Mayen, að stunda hvalveiðar það- an og þar komu menn sér upp hvalveiðistöðv- um og fer þá að styttast í það að flotinn leiti meira í átt til íslands. Upp úr 1640 fór að sneyðast um hval á fjörðum við Svalbarða og einnig í nánd við Jan Mayen og þá fóru skip- in að leita lengra til hafs og þá er farið að gera meira að því að geyma spikið um borð óbrætt og flytja það til heimahafna. Þessi þróun skýrir það, af hverju Hollend- ingar og Englendingar sóttust ekki eftir land- stöðvum hér, eftir að þeir fóru að nálgast ís- landsmiðin og við það bættist náttúrlega and- staða danska konungsvaldsins, sem áður er nefnt, gegn slíkri starfsemi hérlendis. Það verða vitaskuld mikil áraskipti að veið- unum við ísland og hversu nálægt landinu þær voru stundaðar. Það fór eftir því, hvað ís lagðist nálægt landi, því að hvalinn hrakti undan ísnum og hvalveiðimennirnir fylgdu gjarnan ísröndinni. Þegar einnig fór að sneyð- ast um stórhvelin norður frá og menn að leita meira í smáhveli, svo sem langreyði og sand- reyði, þá buðu íslandsmið upp á mikla veiði- möguleika. Sóknin var gífurleg á 17. og 18. öld, en í hve ríkum mæli og hvenær hún fór að beinast verulega á íslandsmið, höfum við engar sagn- ir af, en vafalaust má finna um það heimildir í Hollandi, en Hollendingar voru forystuþjóð- in fram að miðri 18. öld. Hollendingar gerðu út að jafnaði 150 skip árlega á tímabilinu 1640—1770 og það er talið að þeir hafi veitt 58 þúsund hvali á þessu tímabili. 1684 gerðu þeir út 240 hval- fangara og á þessum tíma eru þeir að smá- færa sig vestur á bóginn og í átt til íslands. Þó að Hollendingarnir hafi máski komið hingað til hvalveiða upp úr aldamótunum 1600/1700 eða snemma á 17. öldinni og eitt- hvað verið hér við veið.ar mismikið eftir ís- árum, framan af 17. öld, þá fara þeir ekki að sækja á íslandsmið af verulegum krafti fyrr en það fer að tregðast veiðin við Sval- barða og Jan M.ayen á seinni hluta aldarinnar. Englendingar drógust aftur úr Hollending- um á fyrri hluta 17. aldar, en sóttu sig á síð- ari hluta aldarinnar, en þeir fóru þá meira vestur um og inn á Davissund. Síðast á 17. öldinni fóru Þjóðverjar að blanda sér veru- lega í hvalveiðarnar, einkum Hamborgarar, Danir og Norðmenn komu einnig áfram við sögu og Frakkar, en það dró jafnt og þétt af Böskunum, nema þeir voru eftirsóttar skytt- ur hjá hinum þjóðunum. Upp úr miðri 18. öld, þegar Hollendingar gera út að jafnaði 150 hvalfangara, eru Eng- lendingar með 70—80 hvalfangara og sækja jafnt og þétt í sig veðrið og á 19. öld gera þeir út að jafnaði 150 hvalfangara og eru þá orðnir forystuþjóðin. Af öllu þessu geta menn séð, að það er ekki lítil saga, sem gerist hér í hafinu morður og vestur af íslandi, án þess að íslendingar á þessum tíma virðist hafa af því nokkrar spurnir. Það er skiljanlegt að svo væri, þar sem fleytur okkar voru litlar og fóru ekki langt til hafs, og það verður lítið vart við úthafsveiðiflota fyrr en hann kemur fast unp að ströndinni eða inn á firði og þá höfðu ís- lendingar vissulega gilda ástæðu, eins og áð- ur er bent á, til að þegja fast um viðskipti sín við hvalveiðimennina, nema eitthvað gengi úrskeiðis. í okkar heimildum er því vafalaust ekkert að finna um það, hvenær Svalbarðaflotinn fer að nálgast ísland né hversu stórfelldar veiðarnar urðu. Saga hval- veiðanna við ísland fyrr á öldum er enn óskrifuð og bíður fræðimanns, sem leggur á sig að leita uppi heimildir úti í löndum. 408 — Æ GIR

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.